mánudagur, 18. janúar 2021

RANNÍS úthlutar fé til rannsókna í Svarfaðardal og Hörgárdal

Verkefnið heitir Völd, auður og pest í tveimur dölum: Svarfaðardalur, Hörgárdalur og nágrenni um 870/1500. Verkefnisstjórar eru Árni Daníel Júlíusson, Hugvísindasviði, Háskóla Íslands og Ramona Harrison, Háskólanum í Bergen, Noregi. Verkefnið hefur verið í gangi í einu eða öðru formi í nokkur ár og er talað um það sem „Tvídælu“ eða „Two Valleys“ á ensku. 

Markmið verkefnisins er að svara spurningum um þróun stéttaskiptingar í tveimur dölum norðanlands, Svarfaðardal og Hörgárdal á tímabilinu 870 - 1500. Þetta er meginvandamál í íslenskri sagnfræði sem hefur aldrei fengið nægilega athygli. Ýmislegt bendir til þess að hópur sjálfseignarbænda hafi komið sér fyrir í dölunum fyrst á tímabilinu, um 870-1100. Það er hins vegar ljóst að þegar ritheimildir koma til, rétt fyrir 1200, var orðin til mikil og skýr stéttaskipting í Svarfaðardal og Hörgárdal. Hvernig og af hverju gerðist þetta? Tilgátan um að til hafi verið samfélag sjálfseignarbænda verður prófuð með rannsóknum í Fram-Svarfaðardal, þar sem vísbendingar um samfélag frjálsra bænda skortir en vísbendingar eru annars um byggð á tímabilinu 870-1100. Skortur á rituðum heimildum fyrir þetta tímabil gerir að verkum að fræðilegum vandamálum sem í eðli sínu eru félagssagnfræðileg verður aðeins svarað með fornleifafræðilegum og vistfræðilegum rannsóknum. Gögn úr rituðum heimildum hafa leitt til að tvær spurningar frá tímabilinu 1100-1500 verða lagðar fram og svarað með rannsóknum á fornleifum og vistkerfi. Sú fyrri er hvort til hafi orðið ný undirstétt hjáleigu- eða hjábýlafólks á tímabilinu 1100-1400, og sú síðari er um afleiðingar svartadauða 1402- 1404 á félagskerfið, þar sem ritaðar heimildir virðast gefa til kynna að það samfélag sem fyrir var hafi nánast þurrkast út og byrjað hafi verið upp á nýtt. Hvernig endurspeglast slíkur atburður í fornleifum og vistkerfi?



laugardagur, 21. janúar 2017

Frá ráðstefnu um hungursneyðir í Turku


Í síðustu viku kom ég frá Finnlandi, þar sem ég sat alþjóðlega ráðstefnu um hungursneyðir. Þáttakendur komu víða að, en voru flestir frá Írlandi, Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Eistlandi. Fluttir voru fyrirlestrar um rannsóknir á hungursneyðum í þessum og fleiri löndum, t.d. á Krít, Indlandi og víðar. Ráðstefnan stóð í þrjá daga og var bæði fróðleg og skemmtileg. Hún var haldin í Turku, sem á sænsku nefnist Åbo. Turku er hin forna höfuðborg Finnlands og stendur á fallegum stað við ána Aurajoki.
Áhugi íslenska hópsins beindist að rannsóknum á hungursneyðum á Íslandi á 17. og 18. öld. Við fluttum erindi um hungursneyðarnar 1696-1701 og 1752-1759, sem undirritaður flutti, og um hungursneyðina í Móðuharðindunum, sem Ólöf Garðarsdóttir flutti. Erindi hennar var eins og vænta mátti stórfróðlegt og forvitnilegt. Hún benti t.d. á að fleiri karlmenn hefðu látist í hungursneyðum á Íslandi en konur, bæði í Móðuharðindum og öðrum harðindum á 18. öld. Þá kom fram í erindi hennar að áhrifin af Móðuharðindum hefðu verið langmest á tveimur svæðum, annars vegar í eldhéraðinu, Vestur-Skaftafellssýslu, og hins vegar í héruðum norðan lands, Þingeyjarsýslu, Eyjafjarðarsýslu, Skagafjarðarsýslu og Húnavatnssýslu. Á þessum svæðum dó mestur hluti bústofns og fjöldi fólks varð að flýja þessi héruð. Margt þeirra féll úr hungri eða dó úr hungursóttum.
Guðmundur Jónsson sagnfræðingur flutti erindi þar sem hann gaf yfirlit yfir söguritun um hungursneyðir á Íslandi og kenningar á þessu sviði. Það var inngangserindi ráðstefnunnar.
Rannsóknin á hungursneyðinni 1696-1701 er skammt á veg komin, en frumniðurstöður eru mjög áhugaverðar. Þess ber að geta að hungursneyðin á Íslandi á þessum tíma var síður en svo eina hungursneyðin í Evrópu á þessum tíma. Hungursneyðir voru um alla norðanverða Evrópu, í Skotlandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og líklega Rússlandi á áratugnum 1690-1700. Sama gildir um hungursneyðina 1602-1605, sem var af völdum eldgoss í Perú, hún geisaði um alla Norður-Evrópu og mun hafa verið enn verri en sú um aldamótin 1700.
Meðal heimilda um hungursneyðina 1696-1701 á Íslandi eru annálar, en fjallað er um vitnisburð þeirra í ritum þeirra Hannesar Finnssonar, Mannfækkun af hallærum frá 1796, og í riti Þorvaldar Thoroddsen, Árferði á Íslandi í þúsund ár. Einnig hefur Lúðvík Kristjánsson fjallað um fiskbrestinn sem varð 1685-1702 í grein frá 1701. Það var óvenjulegur fiskbrestur sem jók til mikilla muna á neyðina.
Ein heimild um hungursneyðina hefur þó lítið verið athuguð fram að þessu, en það er Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Þar eru taldar upp allar jarðir sem fóru í eyði á harðindaskeiðinu 1685-1702. Þegar þessi heimild er athuguð og dreifing eyðibyggðarinnar athuguð, kemur fram afar óvænt mynstur. Eins og stendur er aðeins búið að taka saman tölur úr þremur sýslum norðan lands, Þingeyjarsýslu, Eyjafjarðarsýslu og Skagafjarðarsýslu, en einnig úr Ísafjarðarsýslu og Árnessýslu.
Skemmst er frá því að segja að dreifing eyðibyggðarinnar sem skráð er í Jarðabókinni sýnir mjög óvænt mynstur. Nær engar jarðir fóru í eyði í Ísafjarðarsýslu, sem þó var umflotin ísi mörg þessara harðindaára. Hins vegar fóru margar jarðir í eyði í sýslunum þremur norðan lands, en það gerðist fyrst og fremst í nokkrum hreppum, þeim sem lágu yst og nyrst, á Skaga, í Fljótum, Siglufirði og Ólafsfirði, og á Melrakkasléttu og í Þistilfirði. Nær engar jarðir fóru í eyði í innsveitum norðanlands, en Norðurland var þó eins og Ísafjarðarsýsla umflotin ísi og þar geisuðu miklir kuldar. Það hafði hins vegar lítil áhrif á byggð í innsveitum norðan lands, sem er mjög athyglisvert og krefst að sjálfsögðu frekari rannsókna. Einnig er athyglisvert hversu gjörólíkt þetta mynstur er afleiðingum Móðuharðinda, þegar innsveitir Norðurlands urðu mjög hart úti.
Um 1700 fóru hins vegar fjöldi jarða í eyði í Árnessýslu, í hlýjustu sveitum landsins, sérstaklega í efri hluta Árnessýslu, Hreppum, Biskupstungum og Grímsnesi. Þetta eru líka mjög óvæntar niðurstöður, því þrátt fyrir mikinn kulda þá var ísinn ekki eins þrálátur við suðurströndina og fyrir vestan, norðan og austan. Þar gæti fiskbresturinn hafa komið inn í.
Þessar frumniðurstöður gefa sem sagt sannarlega tilefni til að halda áfram rannsóknum á hungursneyðinni 1696-1701 og öðrum hungursneyðum á 17. og 18. öld. Þessar rannsóknir hafa verið mjög vanræktar síðan Hannes Finnsson skrifaði Mannfækkun af hallærum 1796.

mánudagur, 21. nóvember 2016

Var landið albyggt 60 árum eftir fund þess?


Ari fróði segir í Íslendingabók sinni eitthvað á þá leið að landið hafi verið albyggt 60 vetrum eftir fund þess. Fræðimenn hafa mikið deilt um það hvort Ari fróði hafi hér átt við að landið væri albyggt fólki, svo mörgu að fleiri hafi ekki getað búið þar, eða hvort meint sé að landið hafi verið að fullu komið í eigu einhverra ákveðinna aðila. Allt land hafi verið orðið hluti af einhverri jörð.
Ekki hefur enn verið skorið úr þessari deilu. Eins og fram kom í síðasta pistli hafnaði fræðimaðurinn Ólafur Lárusson þeirri skoðun þegar um 1930 að landið hafi verið albyggt fólki þegar 60 árum eftir landnám og studdi það mörgum rökum. Hafa sagnfræðingar að mestu haldið sig við skilning Ólafs síðan, að minnsta kosti hefur enginn gert tilraun til að endurreisa þá hugmynd að landið hafi verið byggt 60 000 íbúum þegar um 965, eins og Björn M. Ólsen hélt fram upp úr 1910 og Ólafur var að mótmæla.
Ari fróði ritaði Íslendingabók skömmu eftir 1100, nánar tiltekið eftir 1122. Á milli 930 og 1122 eru nærri 200 ár. Frá landnámi og til 1000 eða svo voru alls engar ritheimildir skráðar á landinu, og það var ekki fyrr en upp úr 1050 eða svo, að læsir og skrifandi menn yrðu nokkurn veginn aðgengilegir, eftir að kristni og kirkja var búin að festa sig í sessi. Afar fá skjöl eru hins vegar varðveitt frá 11. öld og í rauninni hefst ritöld ekki hér á landi fyrr en um 1100. Að minnsta kosti eru varðveittar ritheimildir nær engar frá því fyrir 1100.
Hvernig gat Ari fróði þá vitað hvort landið hafi verið albyggt um 930? Stutta svarið við þeirri spurningu er að það gat hann ekki haft neina hugmynd um, hvorki hvort landið var fullnumið af fólki svo fleiri gátu ekki lifað af því, né hvort allt land var þá komið í eigu einhvers ákveðins aðila. Fullyrðing hans er algerlega marklaus og ekki studd neinum samtímaheimildum. Rannsóknir mannfræðinga á munnlegri geymd sýna að ekkert mark er takandi á slíkum fullyrðingum byggðum á munnlegri geymd út frá fræðilegum sjónarhóli.
Málið er því leyst, deilan er til lykta leidd: Það er ekkert mark takandi á Ara fróða hvað varðar stöðu byggðar á Íslandi um 930. Álíka mikið mark er takandi á riti því sem kallast Landnáma og lengi var talin geyma allan sannleik um upphaf byggðar á Íslandi. Landnemar hefðu verið 400, námu ákveðið landsvæði sem er nákvæmlega tiltekið um allt land, settust að á tilteknum bæjum og ég veit ekki hvað og hvað.
Ef ekkert er að marka Ara fróða hvað varðar upphaf byggðar þá er enn minna að marka Landnámu. Hún er nefnilega rituð enn síðar en Íslendingabók. Um 1200 hófst ritun Íslendingasagna, sem ganga upp í Landnámu, þannig að samræmi er milli frásagna um landnám í Íslendingasögum annars vegar og Landnámu hins vegar (nema í Svarfaðardal, þar sem Svarfdæla greinir öðru vísi frá landnámi en Landnáma) en þekktar Landnámugerðir eru einmitt taldar ritaðar á seinni hluta 13. aldar. Um 1270 voru 400 ár liðin frá því að landið var numið, og má rétt ímynda sér hversu áreiðanlegar sagnir um landnámsmenn voru þá orðnar.
Landið var hins vegar í byggð um 930, um það er engum blöðum að fletta. Landnám hófst um 870, í síðasta lagi. Fjölmiðlar eru mjög duglegir að birta fréttir um fornleifafræðinga sem hafa komist að því að landið hafi verið komið í byggð fyrir 870, og má vel vera að fólk hafi verið hér á ferð eitthvað fyrir 870. Þetta hefur þó enn ekki hlotið almenna viðurkenningu í fræðasamfélaginu.
Það fræðilega vandamál sem rætt hefur verið á grundvelli ummæla Ara fróða er að sjálfsögðu fullgilt fræðilegt umfjöllunarefni. Það er mikilvægt að átta sig á því hversu hratt landið byggðist og hver fólksfjölgun var á fyrstu öldum Íslands byggðar, og raunar alveg þangað til farið var að telja fólk á vegum ríkisvaldsins árið 1703. Æ meiri gögn hafa verið að koma í ljós hvað þetta varðar eftir því sem fornleifafræðirannsóknum og rannsóknum á fornvistfræði hefur fleygt fram, en það breytir því ekki að staðhæfing Ara fróða hefur ekkert sjálfstætt fræðilegt gildi sem heimild um stöðu byggðar 60 árum eftir landnám.

Íbúafjöldi á Íslandi í fornöld, og líka í Svarfaðardal


Talsverður fjöldi Svarfdælinga hefur fundist í hinum ýmsu kumlum í sveitinni. Rúmlega tugur kumlateiga eða kumlastaða hefur fundist, með allt að 13 manns lögðum til hinstu hvílu. E.t.v. þekkjum við hinstu legstaði 75-100 10. aldar Svarfdælinga eða svo. Nýjar aldursgreiningar úr kumlum á Dalvík benda til að kumlin þar séu líklega frá síðari hluta 10. aldar, en áður höfðu niðurstöður bent til að þau væru sennilega frá því um 920.
Í kumlunum er að finna mun fleiri karlmenn en konur og þar er engin börn að finna. Slík ójöfn skipting kynja og milli aldursskeiða er vel þekkt frá kumlum á Norðurlöndum og því líklegt að konur séu færri í gröfunum en bjuggu í raun í dalnum á 10. öld. Mannfjöldinn í kumlunum bendir því til þess að talsverður íbúafjöldi hafi verið í Svarfaðardal, að minnsta kosti þegar komið var fram á 10. öld. Það hafi verið búið á að minnsta kosti 10-12 jörðum og um 1000 höfðu þrjár til fjórar kynslóðir búið í dalnum, ef landnámið þar var um eða upp úr 870.
Íbúatala á hverri jörð á miðöldum er ekki þekkt nákvæmlega. Talið hefur verið að í 10. aldar skála í Reykjavík hafi búið 6-8 manns, eftir því sem Orri Vésteinsson gerir ráð fyrir. Í Reykjavík voru fleiri en eitt íbúðarhús á 9. og 10. öld, og nýir fornleifafundir þar sýnast benda til að þar hafi jafnvel getað verið dálítið þorp. Álit fornleifafræðinga er að í hverju heimili hafi þó ekki verið fleiri en þetta 6-8, í mesta lagi 5-10. 
Heimildir um búskaparumsvif í Svarfaðardal benda einna helst til að á síðari hluta 10. aldar, kannski um og upp úr 950 hafi að minnsta kosti 10-15 jarðir verið í byggð. Ef til vill hafa sums staðar verið tvíbýli eða jafnvel fleiri býli, kannski sérstaklega á Upsum og þar í grennd, því nokkuð algengt var á landnámsöld að menn byggju í smáþorpum með allt að 4 íbúðarhúsum. Það geta því hafa verið 10-20 fjölskyldur í heild. Ef í hverri fjölskyldu voru 6-8 manns var íbúafjöldinn á bilinu 60-160. Þetta er allnokkuð samfélag.
Margir sagnfræðingar hafa fjallað um það hversu margir íbúar hafi verið á Íslandi á miðöldum. Það gerði Jón Sigurðsson forseti m.a. og hélt að íbúar hefðu verið um 100.000 um 1100. Björn M. Ólsen gerði ráð fyrir að íbúar hefðu verið um 60.000 um 965, um 78.000 rúmri öld síðar og um 72.000 um 1311. Björn ritaði um þessi mál í upphafi 20. aldar og byggði áætlanir sínar á tveimur bændatölum sem varðveist hafa frá miðöldum. Það fyrra er frá því um 1100 og er það ,m.a. að finna í Íslendingabók Ara fróða. Niðurstöður sínar um íbúafjölda um 1100, nánar tiltekið 1095, fékk Björn með því að margfalda fjölda þingfararkaupsbænda um 1095 með hlutfalli milli skattbænda og heildaríbúafjölda á 19. öld.
Almenn hugmynd alveg fram til 1920 eða svo var að íbúar hefðu verið mjög margir strax í upphafi landnáms, og var það byggt á orðum Ara fróða í Íslendingabók um að landið hefði orðið albyggt á 60 árum. Menn trúðu þeim orðum, líkt og menn tóku Íslendingasögunum sem sönnum frásögnum um landnámið og atburði á
Ólafur Lárusson ritaði um þessi mál á 3. og 4. áratug 20. aldar og taldi að hugmyndir um þetta mikinn mannfjölda á miðöldum stæðust ekki. Hann taldi að áætlun Björns M. Ólsen um mannfjölda út frá þingfararkaupsbændatali 1095 stæðist ekki, því forsendur hefðu verið allt aðrar um 1100, miklu fleiri sjálfseignarbændur þá en á 19. öld, og fleira taldi hann til. Hann taldi að íbúar hefðu sjaldan orðið fleiri á Íslandi en 50.000, en að mjög erfitt væri að áætla tölu íbúa á miðöldum. Hann var algerlega ósammála þeirri hugmynd að íbúar hefðu verið flestir í upphafi en síðan farið fækkandi. Ólafur rakti byggðaþróun í Laxárdal eftir ritheimildum (sem enginn trúir nú) og notaði þá rakningu til að rökstyðja þá hugmynd að íbúum hefði fjölgað smám saman á 10. og 11. öld.
Nýjar áætlanir um þetta mál hafa ekki verið margar, en þó tóku þeir Thomas McGovern og Orri Vésteinsson sig til og rituðu um mannfjölda á landnámsöld út frá viðamiklum rannsóknum sínum á landnámsbyggð í Mývatnssveit. Þeir telja að íbúar hafi verið um 24.000 á 10. öld. Um þetta var fjallað í tímariti og umsagnir um áætlun þeirra birtar, og voru ekki allir fræðimenn sem tjáðu sig sammála áliti þeirra. Engu að síður verður að teljast kominn tími til að endurskoða fornar áætlanir, sem eingöngu byggðu á gögnum sem menn trúa ekki lengur, en nú eru komnar miklar fornleifarannsóknir á mörgum sviðum sem gefa tilefni til endurskoðunar.

mánudagur, 14. nóvember 2016

Daniel Bruun á Dalvík


Margir kannast við bókina Íslenskt þjóðlíf í þúsund ár, sem bókaútgáfan Örn og Örlygur sendi frá sér fyrir allnokkru síðan. Þar birtist fjöldi ljósmynda og teikninga sem danski fræðimaðurinn Daniel Bruun tók og gerði á ferðum sínum hér á landi skömmu eftir aldamótin 1900. Færri vita líklega að danska þjóðminjasafnið heiðraði það íslenska á 150 ára afmæli þess árið 2013 með því að skanna og setja á netið allar teikningar og myndir sem Daniel Bruun skildi eftir sig úr Íslandsferðunum. Það er gríðarlegur fjársjóður, því að myndirnar í Íslensku þjóðlífi eru aðeins brot af þeim þúsundum mynda sem Bruun kom með frá Íslandi.
Vefslóðin er http://samlinger.natmus.dk/search?q=Island. Að sjálfsögðu má slá inn leitarorð, eins og „Eyjafjarðarsýsla“ eða „Dalvík“ til að skoða hvað er að finna á hverju svæði fyrir sig. Skönnunin var mikil vinna, en unnt er að hlaða niður öllum myndum í miklum gæðum og aðgangur er algerlega frjáls.
Það var Daniel Bruun fornleifafræðingur sem ásamt með Finni Jónssyni prófessor og norrænufræðingi við Kaupmannahafnarháskóla varð fyrstur til að rannsaka kuml á Dalvík. Í grein í danska tímaritinu Geografisk Tidskrift, 20. bindi 1909-1910 sem aðgengileg er á netinu greina þeir Bruun og Finnur frá rannsóknum sínum á Íslandi 1907-1909. Fyrst er sagt frá rannsóknum á Gásum, þar sem þeir könnuðu búðarústir og teiknuðu upp kort af svæðinu. Einnig grófu þeir í rústirnar og fundu leifar af eldstæðum. Þá er greint frá rannsóknum þeirra á Hofstöðum í Mývatnssveit, en yfirskrift þess kafla er „Udgravning af Gudehuset paa Hofstadir ved Myvatn.“ Þeir rannsökuðu hinn mikla skála á Hofstöðum sem er stærsta hús sem fundist hefur frá víkingatíma á Íslandi. Þá hafði ekkert heiðið hof fundist á Norðurlöndum, en slíkar byggingar hafa fundist síðan.
Daniel Bruun var afkastamikill fornleifafræðingur, var upphaflega í danska hernum og ferðaðist mikið á hans vegum. Mest af fornleifarannsóknum Bruun var á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi, en hann var sá fyrsti sem kortlagði hinar umfangsmiklu rústir af byggðum norrænna manna þar, og lagði þar með grundvöll að rannsóknum á þeirri byggð.
Á Dalvík fundu þeir mikinn heiðinn grafreit, sem er sá stærsti sem fundist hefur á Íslandi. Þeir Daniel Bruun og Finnur Jónsson töldu að grafreiturinn í Brimnesslandi hefði verið fjölskyldugrafreitur, upphaflega í landi Upsa. Meðal þess sem þeir fundu var bátsgröf, en það var fyrsta bátsgröf sem fundist hafði á Íslandi. Fram kemur að þrjár grafanna eða kumlanna sáust vel sem lágir haugar á yfirborði.
Þeir lýsa staðsetningu kumlateigsins, þar sem sér út í mynni Eyjafjarðar og í vestur heim til bæjanna Upsa og Brimness, en Upsir séu í um 1000 metra fjarlægð, og bak við bæinn gnæfi fjöllin. Brimnessáin renni um láglendið milli bæjanna tveggja og nái til sjávar norðan við grafreitinn, en þurr lág sé sunnan við grafirnar og nái til sjávar.
Líkin hafi verið lögð með fætur í norður, þannig að andlitin vissu móti norðri. Grafreiturinn sé afar áhugaverður, jafnvel þótt graftrargóssið sé mjög takmarkað að magni og verðmæti miðað við grafgóss úr heiðnum gröfum sem fundist hafi í Skandinavíu. Þetta sé tilfellið í öllum íslenskum kumlum sem fundist hafi og komi því ekki á óvart.
Þarna hafi verið grafnar alls 13 manneskjur, bæði karlar og konur, og megi þekkja karlagrafirnar af vopnum sem grafin voru með þeim, spjótum. Einnig séu þar blýlóð sem sýni að þessir menn hafi stundað kaupskap. Í kvennagröfunum séu perlur úr gleri og rafi og málmspennur, einnig steingrýtur eða steinpottar.
Þeir félagar tengja frásagnir Svarfdælu við vitnisburð kumlanna, t.d. sé sagt frá bardaga í Láginni sunnan við kumlateiginn og vera má að sumar grafanna séu orpnar yfir þá sem féllu í þeim bardaga. Einnig benda þeir á að Karl rauði hafi verið grafinn í „skipi“ skv. sögunum, en hann hafi hlut í Upsum. Hann hafi hins vegar beðið um að vera grafinn á Karlsá, annarri jörð í eigu hans utar á Upsaströnd, því þaðan myndi hann geta fylgst betur með skipaferðum um fjörðinn.
Þessar rannsóknir þeirra Daniel Bruun og Finns Jónssonar vöktu fyrst athygli á Dalvík sem mikilvægum fundarstað fornleifa, en síðan hefur fjöldi annarra kumla fundist á Dalvík og í Svarfaðardal. Á Dalvík er langstærsta kumlasvæði landsins, með um 20-25 kuml. Eitt þeirra fundu þeir Bruun og Finnur, en það týndist aftur. Það er kumlið sem þeir lýsa við Lækjarbakka. Spennandi væri að leita það uppi.

fimmtudagur, 3. nóvember 2016

Krambúðarbækurnar og dúkkuföt prestsdótturinnar


Í síðasta pistli var örlítið vikið að stöðu einokunarverslunarinnar á Íslandi á 18. öld, og verslun Dana á Íslandi á 19. öld. Minnst var á heimildir um verslun frá 18. öld. Til eru alveg óvenjulegar heimildir frá árabilinu 1759-1763, sem sýna verslun allra heimila sem yfir höfuð stunduðu verslun við kaupmenn, á öllum höfnum á öllu landinu. Þetta eru 100 þykkar og stórar bækur, sem geymdar eru í Rigsarkivet eða Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn. Þessar bækur eru á safninu kallaðar Krambodbøger, Krambúðarbækur.
Þar má sjá verslun á Hofsósi og Húsavík, Vestmannaeyjum og Eyrarbakka, Vopnafirði og Djúpavogi, Akureyri og Keflavík, og öllum hinum höfnum einokunarverslunarinnar. Hver viðskiptavinur, bóndi, bóndakona eða vinnufólk, hefur eina síðu á hverju ári, og þar er fært inn hversu mikið viðkomandi bóndi kaupir og selur. Innkaupin eru yfirleitt yfirgnæfandi mjöl, langmest rúgmjöl. Kvarttunna er algeng, einnig hálftunna af rúgi og ef menn eru sérlega vel fjáðir þá er það heiltunna, og þá stundum líka eitthvað af hveiti. Eftir því sem menn eru betur stæðir eykst verslunin og fjölbreytni varningsins sem er keyptur líka. Menn kaupa sápu, timbur, brennivín, tóbak, skonrok, veiðarfæri, hefla, pappír og fleira.
Einn prestur í Skagafirði, Sigfús Sigurðsson á Ríp í Hegranesi, átti dóttur og keypti handa henni föt á dúkkuna hennar. Þetta er skráð í Krambúðarbókinni á Hofsósi sem „dukketøj“.  Ekki er hægt að lýsa slíkum kaupum öðru vísi en því að þetta hafi verið lúxusneysla, óvenjulegt hefur verið fyrir litla stelpu í íslenskri sveit að geta klætt dúkkuna sína í föt úr búðinni, líklega fínan kjól eins og þeir tíðkuðust í útlandinu um 1760. Þetta gefur líka innsýn í samband prestsins við dóttur sína, honum hefur líklega þótt undur vænt um litlu stelpuna sína.
Séra Sigfús var þá um þrítugt, átti konu og tvö börn, og þrennt vinnufólks var á heimilinu. Þar var líka einn ómagi. Athygli vekur mikið magn af víni og koníaki sem presturinn keypti í einokunarversluninni á Hofsósi. Ekki er víst að Sigfús eða kona hans hafi verið drykkjufólk, þótt prestar hafi í gamla daga verið þekktir fyrir það að þykja sopinn góður. Líklegra er að presturinn hafi viljað geta boðið gestum og gangandi í staupinu, kannski eftir messu á sunnudögum, kannski við önnur tækifæri.
Til að fjármagna dúkkufatakaupin og önnur kaup seldi Sigfús sauði. Þeir voru mikilvægasti hluti þeirrar framleiðslu sem hægt var að leggja inn í verslunina, en líka var þar lagt inn talsvert af ullarafurðum, sokkum, vettlingum og peysum sem prjónuð voru á bænum. Prjónaskap lærðu Íslendingar af þýskum kaupmönnum og sæförum á 16. öld, líklega kaupmönnum frá Hamborg, en á 16. öld var Ísland afar mikilvægt Hamborgurum. Stór hluti verslunar þeirra var þá við landið og mikil umsvif í kringum Íslandsverslun í borginni. En það er annað mál.
Búið hjá séra Sigfúsi á Ríp var að líkindum ekkert smábú. Þar voru árið 1713 sex kýr, tvö naut, 67 ær, 46 sauðir og hvorki fleiri né færri en 19 hestar, eins og vera ber í Skagafirði. Líklega var búið álíka stórt um 1760. Varningurinn sem lagður var inn í versluninni var miðað við þetta fremur takmarkaður að magni. Aðeins lítill hluti af framleiðslu búsins var lagður inn, og í heildina var neysla heimilisins af matvörum úr versluninni, t.d. rúgbrauði, mjög lítil miðað við heildarneysluna.
Árið 1761 voru 371 heimili í Skagafirði, og þar af versluðu 224 við einokunarverslunina. 147 heimili versluðu alls ekki neitt. Verslun flestra þessara heimila var líkari verslun nágranna Sigfúsar á Ríp, Salbjargar í Vatnskoti, sem lagði inn einn sauð eða eitthvað smávegis af prjónlesi, og fékk í staðinn hálfa tunnu af rúgi. Verslun hennar taldist upp á 24 fiska, á meðan Sigfús verslaði fyrir 3 eða 4 fiskhundruð (eitt fiskhundrað taldist 120 fiskar), eða u.þ.b. tuttugu sinnum meira en Salbjörg.
Verslun Sigfúsar var þó ekkert á við verslun manna eins og sýslumannsins í Skagafirði, Jóns Snorrasonar, sem verslaði við konungsverslunina á Hofsósi fyrir 124 fiskhundruð. Verslun hans, Hólastóls og biskupsins sjálfs nam alls 425 hundruðum, á meðan verslun allra bænda í Skagafirði, nærri 400, nam rétt tæplega 800 hundruðum, 794 hundruðum nákvæmlega tiltekið. Þetta sýnir vel eðli verslunarinnar, hún var að stórum hluta í höndum örfárra aðila, en flesta bændur skipti hún litlu máli. Þetta breyttist svo heldur betur á 19. öld.

föstudagur, 28. október 2016

Staða Dana á Íslandi: Var hún sterkari á 19. öld en fyrr eða síðar?


Hér á svarfdælsku miðaldabloggi hefur heldur verið lítið að gerast undanfarið, enda nóg að gera við að ganga frá bók um svarfdælskar miðaldir. Hún er nú á leið í prentun og kemur út fyrir jól.
Hugmyndin er að taka þráðinn upp að nýju, en með nokkuð öðru sniði: Ramminn verður stærri, bloggið mun leika lausum hala og verða meir almennt sagnfræðiblogg, vettvangur fyrir ýmsar vangaveltur höfundar á þessu sviði. Svarfaðardalur verður svo sem auðvitað aldrei fjarri og vonandi verður tilefni til að fjalla um svarfdælska sögu með ýmsum hætti - að minnsta kosti tengja byggðarlagið inn í umræðuefnið hverju sinni.
Höfundur er þáttakandi í verkefni sem fjallar um sambúð manns og umhverfis í Mývatnssveit. Þetta verkefni er þverfaglegt sem kallað er, þ.e. þeir fræðimenn sem eru í rannsóknarhópnum koma hver úr sínu fagi, bókmenntafræðingurinn Viðar Hreinsson, fornleifafræðingurinn Megan Hicks, veðursagnfræðingurinn Astrid Ogilvie og vistfræðingurinn Ragnhildur Sigurðardóttir auk undirritaðs. Meðal þess sem til athugunar er má telja votlendi umhverfis Mývatn og sérstaklega votlendið sunnan við Mývatn sem nefnist Framengjar. Þetta tengir sögu Mývatns við sögu Svarfaðardals, því votlendi var líka mikilvægt í svarfdælskri sögu. Svarfdælingar geta þó ekki státað af áveitukerfi eins og Mývetningar, en Benedikt Sigurðarson frá Grænavatni sýndi okkur ýmsar leifar þess í vettvangsferð rannsóknarhópsins norður til Mývatns seint í ágúst.
Mývargurinn var óvenju friðsamur og meinlaus og við gátum því í góðum friði og góðu veðri skoðað votlendið sunnan við Mývatn, gulstörina þar og tekið sýni af gróðrinum til frekari athugana. Benedikt sýndi okkur leifar af stíflum sem notaðar voru til að stýra rennsli Krákar og veita vatni hennar á engjalöndin. Áveiturnar voru í notkun langt fram á 20. öld. Síðan fórum við á skjalasafnið á Húsavík og skoðuðum mývetnsk, handskrifuð héraðsblöð frá upphafi 20. aldar. Þar kemur skýrt fram hvað Mývetningar töldu votlendið mikilvægt í búskap sínum.
Það sem hvað mesta athygli hefur vakið okkur fræðinganna í hópnum er það hversu gríðarlegur vöxtur var í mývetnsku efnahagslífi á 19. öld, svo sem eins og víða annars staðar á landinu á þeim tíma. Þetta kom meðal annars fram í stóraukinni nýtingu votlendis til útheysgerðar. Heimildir frá 18. öld sýna hins vegar að heldur var lítið að gerast og dauft yfir mannlífi í Mývatnssveit á þeirri öld. Andstæðan við 19. öldina virðist við fyrstu sýn vera nokkuð skörp, en vera má að það sé missýning og nánari athugun gefi til kynna einhverjar þær hræringar, sem á 19. öld gátu af sér einhverja öflugustu félagshreyfingu sem komið hefur fram hér á landi.
Á 18. öld var einokunarverslunin við lýði hér á landi og miklar heimildir til um verslun bænda við hana, þar á meðal verslun Mývetninga. Greining á þessum heimildum sýnir að einokunarverslunin var ef til vill fyrst og fremst tæki í höndum íslensku yfirstéttarinnar, landeigenda, til að koma ullar- og prjónavörum og fiski sem þeir fengu greiddar í landskuld í verð. Þáttaka almennra bænda í versluninni var afar lítil, stundum engin. Mývetningar tóku hins vegar nokkuð almennt þátt í versluninni, sem er ein vísbending um að ef til vill hafi síðari hræringar verið byrjaðar að láta á sér bæra. Verslun þeirra var alls ekki mikil frekar en annarra bænda.
Á 19. öld breyttist þetta allt. Þá hljóp mikill vöxtur í verslun með hvers konar afurðir frá Íslandi, og meðal annars sauðfjárafurðir Mývetninga, allt frá um 1820. Athyglisvert er að það gerðist allt undir ægishjálmi danskra verslunarfyrirtækja, sem einokuðu verslunina hver á sínu landsvæði. Í Þingeyjarsýslum var það fyrirtækið Örum og Wulff sem bæði stýrði vextinum og naut góðs af honum. Bændur nutu þess líka, en ekki í þeim mæli sem þeim fannst að hægt væri; því hófst hreyfing gegn danska valdinu sem lauk með því að dönsku fyrirtækin misstu tökin og kaupfélög bændanna sjálfra tóku verslunina yfir.
Á þessum tíma var dauft yfir íslenskri yfirstétt, sem hafði misst spón úr aski sínum. Dönsku verslunarfyrirtækin rökuðu til sín gróða en lágar landskuldir voru einu tekjur og lélegt hlutskipti íslensku landeigendastéttarinnar. Líklega hefur danska valdið á Íslandi aldrei verið sterkara en einmitt á þessum tíma, 1820-1880, og Ísland aldrei nær því að vera nýlenda Dana en þá. Þetta þarf að kanna nánar, en ég varpa þessu fram hér til umhugsunar, þetta er ennþá tilgáta.

miðvikudagur, 27. janúar 2016

Urðir á 14. öld: Höfuðból með glans


Urðir hafa yfir sér alveg sérstakan glans á 14. öld. Þá bjó þar lögmaðurinn, stundum hirðstjórinn Þorsteinn Eyjólfsson, sem í nær hálfa öld frá 1356 var einn helsti valdamaður landsins. Hann átti í átökum sem færðu hann hvað eftir annað í hættu hérlendis og erlendis, en hann virðist alltaf hafa borið hærri hlut eða sloppið óskaddaður úr deilunum.
Þorsteinn bjó á Urðum að því er best er vitað. Hann átti líka Grund í Svarfaðardal, hluta úr Hálsi í Svarfaðardal og sennilega Grýtubakka í Höfðahverfi, og að öllum líkindum jarðir um Höfðahverfi, í Fjörðu, Fnjóskadal, Svalbarðsströnd og víðar. Vitað er að hann átti jarðir í Kræklingahlíð. Urðakirkja á 14. öld átti tvær jarðir og hlut í þeirri þriðju. Hún átti Skröflustaði og Hól fram, og hlut í Auðnum.
Ekki er unnt að fá heildarmynd af jarðeignum Þorsteins. Það er ekki einu sinni svo gott að til sé yfirlit yfir eignir annarra höfðingja á 14. öld. Einu upplýsingarnar um jarðasöfn eða jarðagóss frá þeirri öld eru frá kirkjustofnunum eins Munkaþverá, Kirkjubæjarklaustri, Þykkvabæjarklaustri, Viðeyjarklaustri og Hólastól. Sé hins vegar miðað við jarðeignir höfðingja af hans standi á 13. öld og svo þeirri 15., en frá báðum þeim öldum eru til skrár eða upplýsingar um eignir veraldlegra höfðingja, gæti Þorsteinn mjög lauslega áætlað hafa átt 1000-2000 hundruð í jörðum, jafnvirði 50-100 meðaljarða.
Sonarsonur Þorsteins, Eyjólfur Arnfinnsson, átti að öllum líkindum um 1000 hundruð í jarðeign á síðari hluta 15. aldar. Upplýsingar um eignir hans eru nokkuð góðar og tæmandi úr fornbréfum. Hvergi kemur hins vegar fram bústærð á höfuðbólum þeirra Urðamanna eins og Urðum eða Grýtubakka. Það sama gildir um bústærðina og jarðeignir, slíkar upplýsingar eru aðeins til frá kirkjustofnunum, t.d. Völlum, á 14. öld. Hins vegar eru til upplýsingar um bústærð á höfuðbólum höfðingja bæði á 13. og 15. öld.
Á Völlum voru 25 kýr og 120 fjár árið 1394, og ellefu geldfjárkúgildi (e.t.v. rúmlega 100 sauðir). Vellir voru talsvert meira en venjulegur bóndabær á þessum tíma, þar var rekinn prestaskóli og bærinn hefur fremur líkst smáþorpi en bóndabæ, e.t.v. með allt að 50-70 íbúum. Sama gildir um Urðir. Á 15. öld voru allt að 50 kýr á höfuðbólum stórhöfðingja og 200 ær. Slík höfuðból voru fjölmenn, og valdamenn héldu á þessum tíma sveinalið, sem ef til vill hafa haldið til á höfuðbólunum, eins konar setulið til að tryggja öryggi höfðingjanna.
Það má því geta sér til að á Urðum hafi verið talsvert stórt bú, nokkrir tugir kúa og 100-150 ær. Þar hafi búið vinnufólk sem sinnt gat öllu þessu fé, sem og ýmsir starfsmenn, fjölskyldur þeirra, sveinalið, prestar, og síðan sjálf höfðingjafjölskyldan. Eins og Vellir hafa Urðir sennilega fremur líkst smáþorpi en venjulegum bóndabæ. Þar var fjöldi fólks og mikið um að vera allt árið. Gestakomur og umferð mikil bæði til og frá Eyjafirði um Heljardalsheiði, og ekki síst gestakomur heim að Urðum, menn að sinna ýmsum erindum sem þeir áttu við höfðingjann.
Urðir voru mjög líklega aðalbækistöð sveinaliðs Urðamanna. Sveinalið voru eins konar einkaherir sem hver höfðingi varð að hafa sér til fulltingis. Ekki var hættandi á annað. Skærur, árásir og mannslög voru algeng á þessum tíma, sérstaklega meðal höfðingjastéttarinnar. Það var algengt að menn létu vopnin tala á mannamótum og þingum, eða réðust heim á höfuðból eða bændabýli og létu greipar sópa.
Urðir voru því herstöð, og þar var mikil verðmæti að verja, tekjur af 50-100 jörðum sem greiddar voru í vaðmáli, skreið og ýmiskonar öðrum varningi, auk skatttekna sem hirðstjóri innheimti fyrir konung, á meðan Þorsteinn gegndi því embætti. Urðir voru aðalstjórnstöð í stóru jarðagóssi, höfuðstöðvar stórfyrirtækis.

mánudagur, 18. janúar 2016

Hnjúksbóndinn og klaustrið


Í Landbúnaðarsögu Íslands, 1. bindi eftir undirritaðan er sagt frá samskiptum bóndans á Hnjúki, Erlends Bergþórssonar, við landeigandann, Möðruvallaklaustur. Þetta var árið 1398, rétt fyrir Svartadauða, nánar tiltekið föstudaginn fyrir Pálmasunnudag það ár. Séra Sveinn nokkur kærði þá til klaustursins að Erlendur hefði setið á „staðarins jörðu ótekinni að heimild“, Hnjúki. Þar hefði hann haldið leigukúgildum heimildarlaust, fyrir staðnum frá fardögum og fram að föstudeginum fyrir Pálmasunnudag árið eftir, sem sagt nærri heilt ár.
Séra Sveinn kærði málið til Steinmóðs officialis Þorsteinssonar prests Hólakirkju. Séra Sveinn lýsti því í kærunni að hann hefði að vísu leigt Erlendi jörðina eitt ár, árið áður, 1396-97. Árið eftir krafðist séra Sveinn þess að Erlendur færi af jörðinni, og afhenti klaustrinu leigukúgildi þess á ný. Sveinn hélt því fram að hann hefði sagt Erlendi þetta þegar haustið 1396, en hann hefði ekkert sinnt því að fara af jörðinni í fardögum 1397. Erlendur viðurkenndi að hafa setið á jörðinni og haldið kúgildi klaustursins sumarið 1397 og veturinn 1397-98, í óleyfi að því er Sr. Sveinn sagði.
Steinmóður kvað upp þann úrskurð að Erlendur hefði ekki haft rétt til að sitja Hnjúksjörð á þessum tíma. Sveinn fór fram á að Erlendur yrði bannsettur fyrir vikið, þ.e. að hann hefði fallið í bann af sjálfs síns verki að sitja jörðina ólöglega og yrði því að taka lausn og skriftir.
Skyldi Erlendur flytja frá jörðinni „með allt sitt“ innan fimm nótta og ætti klaustrið allt hey og torf sem finna mætti á jörðinni. Þar að auki skyldi Erlendur borga klaustrinu 15 merkur í sekt, sem var 720 álnir, og 12 aura eða 72 álnir að auki „í landnám“, þ.e. ólöglega setu jarðar. Líka skyldi hann borga fyrir ólöglega heynotkun, og ættu matsmenn að ákvarða þá upphæð. Einnig átti hann að afhenda Séra Sveini öll leigukúgildin sem hann hafði haldið ólöglega.
Kveðið var á í dómnum um að Erlendur skyldi greiða ávöxt eftir kúgildin, veturgamlan sauð eftir hverja á og kálf af hverri kú, „ ... en 12 álnir fríðar af hverju geldfjár hundraði og þar til skyr, smjör og sýru og ull af málnytunni ...“. Fram kemur að hann á að gjalda ull af 15 ám og 10 sauðum,  alls átta fjórðunga ullar. Einnig smjör, skyr og sýru af þessum ám og fjórum kúm, sem hann leigði einnig.
Þetta er sem sagt leiguféð, leigukúgildin í eigu klaustursins, 15 ær, 10 sauðir og fjórar kýr.
Hér er Hnjúkur sem sagt orðin leigujörð, seint á 14. öld, en mestar líkur eru á að jörðin hafi verið sjálfseignarjörð á 10. og 11. öld og jafnvel lengur. Það segir okkur bænhúsið sem var á staðnum samkvæmt heimildum frá 15. öld. Ýmsar jarðir sem höfðu verið sjálfseignarjarðir lengi virðast hafa lent í eigu klaustra og biskupsstóla á 14. og 15. öld. Bóndi sem bjó á 30 hundraða jörð eins og Erlendur var í hópi betri bænda, og því er meðferðin á honum athyglisverð. Séra Sveinn hefur viljað rýma fyrir einhverjum öðrum bónda, betri vini sínum, annaðhvort frænda eða skjólstæðingi, en Erlendur hefur greinilega ekki fengið nægilega skýr skilaboð.
Veldi klaustursins hefur verið mikið fyrst það gat leyft sér svona framkoma gagnvart leiguliða sínum. Klaustrið hótaði með bannsetningu, og slíkt var auðvitað ekkert gamanmál. Menn voru þar með komnir út úr kirkjunni og sál þeirra átti ekki vísa vist á himnum. Erlendur skuldaði stórfé eftir þetta Hnjúksævintýri sitt og dóminn og hefur orðið að greiða það til að eiga innangengt í himnaríki og lenda ekki í verri staðnum.

sunnudagur, 10. janúar 2016

Skammvinn gullöld Möðruvallaklausturs í Hörgárdal á 14. öld


Um 1400 átti Möðruvallaklaustur í Hörgárdal 15 jarðir eða svo í Svarfaðardal og var sennilega stærsti einstaki jarðeigandinn á þessum slóðum. Möðruvellir urðu síðan fyrir gríðarlegu áfalli í Svartadauða og náðu sér aldrei sem kirkjustofnun en áttu alltaf slatta af jörðum í dalnum, sem svo urðu hluti af Möðruvallaumboði eftir að konungsvaldið tók yfir klaustrið 1550 og lagði niður klausturreksturinn. Hann samrýmdist ekki lúterskum grundvallarreglum.
Möðruvellir í Hörgárdal eru sennilega ein af landnámsjörðum í Hörgárdal. Landamerki jarðarinnar benda til þess. Möðruvellir eiga landræmu meðfram Hörgá niður með ánni fyrir neðan margar nágrannajarðir sínar, alveg niður að Ósi. Það gætu verið leifar af upphaflegri landareign Möðruvalla, sem hafi náð jafnvel norður að Hvammi, sem er önnur landmikil og hátt metinn jörð á þessum slóðum. Um það er erfitt að fullyrða.
Fátt er vitað um Möðruvelli á tímabilinu 870-1150 eða svo en mikill áhugi beinist nú að þeim vegna hinna umfangsmiklu klausturrannsókna sem eru í gangi á vegum Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns. Möðruvellir urðu staður og aðsetur sóknarkirkju á 12. öld, þ.e. kirkjustaður með stórri sókn sem náði líklega um verulegan hluta Hvammshrepps. Annar kirkjustaður í Hvammshreppi var Arnarnes. Þar bjuggu höfðingjar og t.d. settist Sighvatur Sturluson þar að þegar hann flutti fyrst í Eyjafjörðinn 1215 og gerðist þar höfðingi.
Um 1290 eða svo voru Möðruvellir ennþá staður, eins og kemur fram í Lárentíusar sögu Kálfssonar, en árið 1295 var stofnað þar klaustur. Ekkert er vitað um staðinn Möðruvelli, t.d. hverjar voru jarðeignir staðarins áður en klaustur var stofnað þar og máldagi Möðruvalla er ekki í Auðunnarmáldögum. Fremur lítið hefur varðveist af skjölum frá fyrstu tíð Möðruvalla, og t.d. er ekki vitað hvaða jarðir voru gefnar til klaustursins í upphafi. Það er vitað í öðrum tilfellum, t.d. hvaða jarðir nunnuklaustrið á Reynistað fékk þegar það var stofnað 1296, ári síðar en Möðruvallaklaustur.
Fram kemur í Lögmannsannál að hluti jarða klaustursins var tekinn undan því, m.a. jarðir sem „Egill biskup og Einar prestur“ höfðu gefið því, ef til vill í stofngjöf. Sú ráðstöfun tengdist deilum milli Hólastóls og Möðruvallaklausturs um og upp úr 1330. Hólabiskup hugðist þá flytja klaustrið heim að Hólum en munkarnir á Möðruvöllum mótmæltu því og höfðu sitt fram. Klaustrið var áfram á Möðruvöllum. Þetta er nokkuð áhugavert mál og hefði að öllum líkindum styrkt mjög staðinn á Hólum hefði flutningurinn náð fram að ganga. En Eyfirðingar hefðu ekki verið ánægðir með þá niðurstöðu.
Möðruvallaklaustur óx mjög hratt að auði og jarðeignum og átti að öllum líkindum á milli 70 og 80 jarðir um 1400, flestar í næsta nágrenni í Hörgárdal og á Gálmaströnd, en einnig talsverðan fjölda í Svarfaðardal eins og áður getur og miklu víðar. Þá voru aðeins um 100 ár liðin frá stofnun klaustursins, og eignir þess voru t.d. mun meiri en eignir Munkaþverárklausturs, sem þó var mun eldra, stofnað á 12. öld. Hins vegar lauk þessari gullöld Möðruvalla skyndilega í upphafi 15. aldar þegar Svartidauði hjó sitt mikla högg. Um 1447 átti klaustrið ennþá milli 70 og 80 jarðir, en stór hluti þeirra var í eyði.
Eftir 1447 byggðust aldrei fleiri en rúmlega 50 jarðir eða svo í eigu klaustursins og margar jarðir gengu undan því, t.d. í Svarfaðardal. Margar eyðijarðir klausturins byggðust heldur aldrei aftur, eins og Oddsstaðir sunnan við Öxnhól í Hörgárdal, þar sem dr. Ramona Harrison fornleifafræðingur hefur gert fornleifarannsókn. Oddsstaðir höfðu verið í byggð allt frá 10. öld og var engin kotjörð.

fimmtudagur, 3. desember 2015

Fiskislóðir, hernaður og rán við Eyjafjörð um 1200


Hér hefur að undanförnu verið fjallað um ýmsar sögur úr Guðmundar sögu dýra sem tengjast með einum eða öðrum hætti Svarfaðardal. Ýmislegt efni um Svarfaðardal er líka í Prestssögu Guðmundar Arasonar, en annars eru ekki til margar heimildir um sögu Svarfaðardals eða Eyjafjarðar frá 12. og 13. öld. Skjöl fara fyrst að koma að einhverju marki eftir 1300, sérstaklega með máldagasöfnunum, en fyrsta máldagasafnið fyrir Hólabiskupsdæmi er frá 1318 og er prentað í Íslensku fornbréfasafni, 2. bindi.
Sagnaefnið er hins vegar mjög auðugt og gefur margþætta innsýn í samfélagið í Eyjafirði og Svarfaðardal, sérstaklega við lok 12. aldar. Margir koma við sögu, ekki bara höfðingjar og hefðarprestar. Fjölmargir bóndabæir eru nefndir, ekki bara í Eyjafirði heldur líka Skagafirði, Þingeyjarsýslum og víðar. Rætt er um fiskveiðar, sérstaklega í sambandi við Siglunes, þar sem virðist hafa verið verstöð og jafnvel fiskiþorp. Þar var stórbýli og ef til vill þurrabúðir eða hjáleigur í kring. Miklar fornleifarannsóknir fara nú fram á Siglunesi, því leifarnar eru í hættu vegna sjávargangs og flóða. Slæmt væri að missa þann mikla þátt sögunnar í sjóinn í einhverju norðan stórviðrinu.
Vissa er fyrir því að útgerð var stunduð frá Upsaströnd á 14. öld og nánast örugglega fyrir þann tíma. Sama gildir um Hrísey og Grímsey. Afgjöld af jörðum á þessum slóðum voru greidd í skreið á 14. öld. Vitað er að farið var að flytja út skreið skömmu fyrir miðja 14. öld og gæti það hafa aukið mikilvægi þessara staða. Áður hafði vaðmál verið helsta útflutningsvaran.
Ein tegund bústaða er sérstaklega áberandi í Guðmundar sögu dýra, en það eru víggirt höfuðból. Vellir voru víggirtir með þeim hætti að þar var veglegur kirkjugarðsveggur úr grjóti, og  þegar lið á vegum Brands biskups réðist á staðinn og ætlaði að framfylgja fyrirskipunum biskups um stjórn Valla var búið að efla vígið í kirkjugarðinum með röftum, þ.e. trjábolum. Þrjátíu manns gátu varið staðinn gegn 150 manna liði biskups. Önnur höfuðból höfðu vígi úr torfi, oft tengd við skála eða stofu. Það gilti um Bakka í Öxnadal, Laugaland á Þelamörk, Auðbrekku, Langahlíð, Grund í Eyjafirði og Laufás, sex af þeim höfuðbólum sem sagan hverfist um. Guðmundar saga dýra er sú saga í Sturlungasafninu þar sem mest er fjallað um vígi við höfuðból.
Margra tuga manna lið dvaldi oft á þessum höfuðbólum höfðingjum til verndar. Lítill vafi er á því að höfðingjarnir sem þar bjuggu áttu leigujarðir, og er beinlínis getið um jarðir í eigu Guðmundar dýra, bæði í Öxnadal, Hörgárdal og Norðurárdal í Skagafirði. Tekjur af þeim jörðum hafa að sjálfsögðu runnið til höfðingjans. Í Guðmundar sögu dýra segir líka frá því að Guðmundur dýri átti leigukúgildi hjá bónda í Fagraskógi á Gálmarströnd. Svo fór að bóndinn var veginn vegna þess að hann stóð ekki skil á kúgildinu, að minnsta kosti ekki nægilega góð skil að mati Guðmundar.
Hernaður var stundum fjármagnaður með ránum, eins og lýst er í Guðmundar sögu dýra og mörgum öðrum sögum í Sturlungu. Færi margra tuga eða hundraða manna her af stað þurfti bæði að fæða og klæða herinn og mat var einungis að fá á bóndabæjum. Þá gilti einu hvort bændur áttu jarðirnar eða leigðu þær, einungis varð komið í veg fyrir ránin með nægilega sterku vopnavaldi á móti, og almennir bændur réðu ekki yfir slíku valdi. Hernaður var því mikið samfélagslegt vandamál og almenningi mikið í mun að friður ríkti. Slíkt gæti skýrt mikinn stuðning við kirkjuna, sem boðaði frið og stóð ekki í miklum hernaði, t.d. á 14. eða 15. öld, að minnsta kosti ekki miðað við mikið og ömurlegt hernaðarbrölt höfðingja á 12. og 13. öld. Á þeim tíma var kirkjan orðin langöflugasti jarðeigandi landsins.

mánudagur, 30. nóvember 2015

Hverjir réðu ríkjum í Svarfaðardal á 13. öld?


Eftir að Guðmundur dýri lét af völdum í Eyjafirði 1212 er ekki ljóst hverjir voru helstu höfðingjar þar um slóðir. Þorgrímur alikarl höfðingi á Möðruvöllum í Hörgárdal og helsti andstæðingur Guðmundar um 1200 var tengdur Oddaverjum, systir hans var ein kvenna Sæmundar Jónssonar í Odda.
Ekki er heldur ljóst hvort Guðmundur dýri hafði full völd í Eyjafirði þegar hann lét af völdum þar. Hann vann líklega aldrei afgerandi sigur á óvinum sínum. Síðasta orusta þeirra Þorgríms alikarls var á Grund í Eyjafirði og lauk með því að Þorgrímur og bandamenn hans handsöluðu Guðmundi sjálfdæmi um sættir. Þorgrímur var eftir það félaus og fór vestur í Skagafjörð og er úr sögunni. Stuðningsmenn Þorgríms sátu eftir og kemur ekki fram að þeir hafi játast undir vald Guðmundar að öðru leyti en því að allir guldu þá upphæð sem Guðmundur krafðist til sátta.
Síðustu afskipti Guðmundar af héraðsmálum sem sagt er frá voru varðandi mál í Svarfaðardal, það hver skyldi fara með Velli, hafa þar staðarvöld. Þar lenti Guðmundur og bandamenn hans í átökum við Brand Jónsson Hólabiskup, en svo fór að sátt varð um niðurstöðuna milli Brands biskups og Guðmundar.
Þegar næst fréttist af því hverjir réðu ríkjum í Eyjafirði og þar með Svarfaðardal, árið 1215, voru Sturlungar komnir til sögunnar. Sighvatur Sturluson hafði eflst mjög að völdum vestan lands, bjó fyrst í Hjarðarholti og síðan á Sauðafelli, en báðar jarðirnar eru í Dölum. Hann hafði Snorrungagoðorð og var því goðorðsmaður. Árið 1215 réðst hann til Eyjafjarðar, tók þar við héraðsvöldum og settist að á Möðruvöllum í Hörgárdal ásamt með Sigurði mági sínum Grímssyni. Síðan keypti hann Grund í Eyjafirði og bjó þar til elli. Á meðan hann lifði réði hann ríkjum um allt Norðausturland, bæði Eyjafjörð og Þingeyjarþing.
Athyglisvert er að Sighvatur skuli fyrst hafa sest að á Möðruvöllum, höfuðbóli Þorgríms alikarls, andstæðings Guðmundar dýra, og síðan á Grund í Eyjafirði. Hér hafa tengsl Sturlunga og Oddaverja líklega skipt máli. Oddaverjar höfðu áhrif í Eyjafirði og hafa líklega átt þátt í að Sighvatur tók við völdum þar. Andstæðingar Guðmundar dýra höfðu þar með í raun náð völdum í Eyjafirði.
Í Íslendinga sögu segir hins vegar að þá hafi margir stórbændur verið í Eyjafirði og hafi þeir ýfst heldur við Sighvat. „Þótti þeim hann eiga þar hvorki í héraði erfðir né óðul.“ Nokkuð segir frá málum í Eyjafirði eftir að Sighvatur tók þar völd. Átök urðu þegar Sturla Sighvatsson reyndi að ná sverði einu, Brynjubít, sem var í eigu Þorvarðar Örnólfssonar í Miklagarði. Þorvarður var „hinn besti bóndi í Eyjafirði“. Þorvarður var bróðir Jóns, sem bjó á Möðruvöllum í Eyjafirði, og hefur að minnsta kosti verið næst besti bóndi í Eyjafirði.
Þeir bræður, Sturla og Tumi, vildu kaupa sverðið Brynjubít en Þorvarður vildi ekki selja. Hann féllst þó á að lána Sturlu sverðið, en það dróst að hann afhenti Sturlu það. Fór þá Sturla inn í Miklagarð við þriðja mann, gekk inn í húsið og tók sverðið. Prestur einn þreif í sverðið, og kom Þorvarður síðan að og vildi ekki leyfa Sturlu að taka sverðið. Sturla var þá 18 ára. Hann var með exi og hjó með henni í höfuð Þorvarði, en öxin snéri vitlaust og kom hamarinn í höfuð Þorvarði. Lá hann sem dauður væri og blæddi mjög. Sturla fór við svo búið og tjáði Sighvati föður sínum málalyktir, en Sighvatur skammaði Sturlu fyrir tiltækið. Sighvati mun þó ekki hafa líkað þetta sérlega illa. 
Sighvatur féllu báðir í Örlygsstaðabardaga 1238 og Ásbirningar, helstu stuðningsmenn Guðmundar dýra á sínum tíma, náðu þá völdum í Eyjafirði.
Sigurvegarar í Örlygsstaðabardaga voru Kolbeinn ungi, foringi Ásbirninga, og Gissur Þorvaldsson foringi Haukdæla. Þetta bandalag náði nú völdum í Eyjafirði, nánar tiltekið Kolbeinn ungi, sem hafði völd um allt Norðurland alveg til fráfalls síns árið 1245. Þá náði Þórður kakali yfirráðum þar, og raunar nánast um allt land eftir Haugsnessbardaga alveg til 1252.
Þess má geta að Oddaverjar gáfu konungi goðorð sín árið 1249. Þingmenn þeirra voru að líkindum flestir á Rangárvöllum.
Þegar Þórður kakali fór utan á konungsfund árið 1250 skipaði hann Hrana Koðránsson yfir veldi sitt á Norðausturlandi, þar á meðal í Eyjafirði og þá Svarfaðardal. Lauk svo að Þorgils skarði fékk yfirráð yfir Eyjafirði 1256 og eftir það Noregskonungur árið 1258. Var Gissur Þorvaldsson þá skipaður jarl yfir lönd konungs á Íslandi.

fimmtudagur, 26. nóvember 2015

Guðmundur dýri lætur af völdum


Guðmundar sögu dýra lýkur með því að Guðmundur dýri gefur upp mannaforráð, flytur frá Bakka í Öxnadal, höfuðbóli sínu og gengur í klaustur í Þingeyraklaustri. Hann hafði þá lengi reynt að ná völdum um allan Eyjafjörð og hafði stuðning ýmissa héraðsmanna, sérstaklega Svarfdæla. Andstæðingar Guðmundar höfðu stuðningsmenn suður á Rangárvöllum og gátu leitað þangað ef í nauðir rak. Guðmundur dýri hafði hins vegar stuðning Ásbirninga í Skagafirði og kom Kolbeinn Tumason til liðs við hann oftar en einu sinni.
Helstu andstæðingar Guðmundar dýra voru fyrst Önundur Þorkelsson goðorðsmaður á Laugalandi og í Lönguhlíð (nú Skriðu) og síðan Þorgrímur Vigfússon alikarl, eftir að Guðmundur hafði drepið Önund í Lönguhlíðarbrennu. Þorgrímur var giftur Guðrúnu dóttur Önundar goða. Þau bjuggu fyrst á Möðruvöllum en voru síðast á Laugalandi í Þelamörk. Þorgrímur hafði stuðning Innfirðinga, þ.e. þeirra bænda sem bjuggu í Eyjafjarðardal, og það virðist hafa reynst Guðmundi dýra um megn að yfirvinna andspyrnu þeirra. Þorgrímur hafði líka stuðning bænda sums staðar í Hörgárdal og líklega einnig á Gálmaströnd og í Kræklingahlíð. Með honum í forystu í síðasta hluta átakanna milli Guðmundar dýra og andstæðinga hans var Þorsteinn Jónsson Loftssonar af ætt Oddaverja.
Ekki er víst að þeir Önundur og Þorgrímur hafi haft sama markmið og Guðmundur dýri, að sameina héraðið undir einni stjórn. Vera má að stuðningsmenn þeirra hafi að einhverju marki haft önnur markmið, þannig að um pólitískan ágreining hafi verið að ræða, ágreining um markmið og leiðir í héraðsstjórninni. Yfirleitt hefur verið gefið í skyn í umfjöllun um Sturlungaöld að valdabarátta aldarinnar hafi verið stefnulaus valdastreita milli höfðingja, en það er ekki víst. Athyglisvert er að stuðningur við Önund og Þorgrím var mestur á svæðum þar sem líklegt er að margir sjálfseignarbændur eða fjölskyldur sem áttu e.t.v. 1-5 jarðir eða svo gætu hafa búið.
Hins vegar blandaðist landspólitíkin beint inn í átökin í Eyjafirði við að Oddaverjar á Rangárvöllum studdu annan aðilann, en Ásbirningar í Skagafirði hinn. Haukdælir komu við sögu sem sáttasemjarar og einnig aðrar höfðingjaættir.
Skoðum aðeins framferði þeirra Guðmundar dýra og Kolbeins Tumasonar í einum þætti átakanna um Eyjafjörð. Veturinn eftir allraheilagramessu kom upp sá kvittur, sem átti uppruna sinn suður og inn í Eyjafirði, að Þorgrímur alikarl, sem verið hafði í skjóli Oddaverja á Rangávöllum um veturinn, væri kominn að sunnan með hundrað manna (120 manna lið), leyndist í Gnúpufellsskógum og ætlaði að ráðast á Guðmund.
Guðmundur dýri sendi þegar í stað boð til Kolbeins Tumasonar og bað hann að koma með allt það lið sem hann gæti úr Skagafirði. Sagan segir að á meðan Guðmundur beið komu Kolbeins og liðsafla hans hafi hann farið á Laugaland og rænt þar og tekið það bú sem þar var eftir og Þorgrímur átti. Einnig tók hann fé af þeim bændum sem stutt höfðu Þorgrím í átökum um haustið árið áður.
Þegar Guðmundur kom heim að Bakka að loknum ránum var Kolbeinn að koma með 50 manna lið vestan úr Skagafirði. Síðan kom í ljós að kvitturinn um að Þorgrímur væri komin að sunnan var ekki annað en kvittur, Þorgrímur var ekki kominn. Kolbeinn fór þó ekki þegar í stað vestur yfir Öxnadalsheiði heldur dvöldu hann og menn hans á Bakka um skeið. „Menn þeirra Guðmundar áttust illt við. Þeir deildu bæði um tafl og konur og stálust frá og skildust við það að hvorugum líkaði vel.“, segir sagan. Kolbeinn fór svo og menn hans um dalinn og „tóku af bóndum slíkt er honum sýnist … “.
Þessi saga um hættuna sem leyndist í Gnúpufellsskógum gefur tilefni til að minnast á atriði sem sjaldan er rætt í sambandi við Sturlungaöld. Það er taugaveiklunin og áfallastreituröskunin sem menn hljóta að hafa verið farnir að finna fyrir við slíkar aðstæður. Guðmundur hafði lengi barist fyrir völdum í Eyjafirði og á ýmsu hafði gengið. Margs konar ofbeldisverk og átök fléttuðust saman og mynduðu þann heldur ófagra átakabálk sem Guðmundar saga dýra greinir frá. Óstaðfestur kvittur dugði til að Guðmundur óskaði liðveislu Kolbeins og sýnir það vel þá taugaveiklun og óöryggi sem menn bjuggu við. Fleiri slíkar sögur eru í Sturlungu, þ.á m. í Guðmundar sögu dýra.
Slíkt gæti hafa átt þátt í að Guðmundur ákvað að hætta tilraunum sínum til að ná völdum í Eyjafirði.

þriðjudagur, 3. nóvember 2015

Guðrún á Arnarnesi og eiginmenn hennar 2. hluti


Í síðasta pistli var sagt frá því er Guðrún á Arnarnesi flúði fyrst til Gríms á Hofi og síðan norður á Siglunes til fyrrverandi tengdaföðurs síns, Þorvarðs kamphunds sem þar bjó. Þar var hún lengi, er sagt.
Þar kom þó að gerðar voru ráðstafanir til að Guðrún færi til bús síns og manns, hvort sem hún vildi eða ekki. Þorvarður fór á hverju sumri með fullt skip af föstumat, þurran fisk og annað þess háttar, inn til héraðs í Eyjafirði og seldi bændum. Nú fór hann af stað, sigldi inn eftir firði með skipið fullt af varningi og Guðrúnu með sér. Þorvarður fór til Gása, segir í Guðmundar sögu dýra. Þar var kaupskip þá statt, og tjaldaði Þorvarður og Guðrún var í tjaldi með honum.
Þórður Þórarinsson höfðingi í Laufási og synir hans þrír, m.a. Hákon, voru þar á kaupstefnunni, og bar svo við að þau Hákon og Guðrún rákust hvort á annað. Þau höfðu raunar oft sést áður, en aldrei ræðst við, en nú tóku þau tal saman. Hákon kom á hverjum degi til að tala við Guðrúnu á meðan þau voru þar.
Nú lauk kaupstefnunni. Þorvarður sigldi með Guðrúnu út með firði og setti hana af á Arnarnesi og lét hana fara heim til bónda síns og bús.
Nú tók Hákon Þórðarson að venja komur sínar í Arnarnes og „fór því fram vetur allan.“ Loks sagði Guðrún Hákoni að hann skyldi hætta að koma á meðan Hrafn væri á lífi, en gaf í skyn að hann mætti koma þegar Hrafn væri dauður. Hákon var fljótur að bregðast við áskoruninni og var það einn dag að þau sátu á þverpalli, Hákon og Hildibrandur bróðir hans og Guðrún og „töluðu lágt en Hrafn sat í bekk og reist spón því að hann var hagur maður.“ Risu þá upp þeir bræður og hafði Hákon spjót, sem hann stakk í brjóstið á Hrafni. Síðan veitti Hákon Hrafni annað sár, og varð svöðusár. Gengu þeir bræður út við svo búið
Hrafn tók öxi er þar lá hjá og hugðist ráðast á þá bræður en Guðrún bað hann að vera kyrran. Hrafn lá síðan þrjár nætur í sárum sínum og andaðist síðan.
Hákon og þeir Laufássmenn voru frændur Guðmundar dýra, Hákon var bróðursonur hans. Höfðingjum þótti uppgangur Guðmundar ærinn, hann hafði látið taka af Vöðlaþing og réði nú öllum málum í héraðinu sjálfur. Sagði hann að stórdeilur yrðu á þinginu og betra að hafa það ekki.
Andstæðingar Guðmundar hugðu sér gott til glóðar vegna vígs Hrafns, og brást Guðmundur við með því að bjóða bróður Hrafns, Erlendi presti til sín og bauð honum bætur eftir bróður sinn. Haldinn var fundur á Steinastöðum gegnt Bakka í Öxnadal og voru þar málsaðilar, þar á meðal Þórður bróðir Guðmundar og synir hans, þar á meðal Hákon sem vegið hafði Hrafn. Þórður gerði þá kröfu að Guðrún greiddi helming bóta fyrir Hrafn, því hún hefði ráðið honum bana. Það vildi Guðrún ekki.
Var þá gerð sætt um víg Hrafns og voru gerð 15 hundruð fyrir það. Guðmundur greiddi þegar sektina og lét þá Skagfirðinga hafa tvær jarðir sem hann átti, Hálfdanartungu (í Norðurárdal í Skagafirði) og Uppsali, næsta bæ við Silfrastaði. Höfðingjar í Eyjafirði uggðu ekki að sér og fréttu ekki af sættinni fyrr en eftir að henni var lokið.
„Síðan fékk Hákon Guðrúnar og var við hana harður og kvað sér eigi skylud það verða að hennar menn stæðu yfir höfuðsvörðum hans.“
Sagan af Guðrúnu er afar athyglisverð, því svo virðist sem sagan af henni, og af Þorgerði Þorgeirsdóttur á Brattavelli á Árskógsströnd sé sögð að einhverju marki til að vara við því að konur eigi jarðir og standi fyrir búi. Af því hljótist ekkert annað en vandræði. Á hinn bóginn má líka segja að saga Guðrúnar sé tragísk, í raun hetjusaga, því Guðrún sætti sig ekki við örlög sín. Hún sætti sig ekki við að forráðamenn sínir veldu handa sér eiginmann út frá hagsmunum þeirra og bandalagsþörf, og gerði uppreisn gegn því.
Í öðru lagi er afar athyglisvert að jarðirnar tvær, Arnarnes og Brattavöllur eða Brattavellir eins og hún hét síðar, skyldu hafa verið sjálfseignarjarðir. Hólastóll eignaðist síðar Brattavelli, á síðari hluta 15. aldar eða fyrri hluta þeirrar 16. Arnarnes komst í eigu Möðruvallaklausturs, sennilega á 14. öld. Ef til vill hafa margar jarðir á þessu svæði, Gálmaströnd og Árskógsströnd „út frá Svarfaðardal“ eins og segir í Guðmundar sögu dýra, verið sjálfseignarjarðir á 12. og 13. öld og jafnvel fram á þá 14.  

Guðrún á Arnarnesi og eiginmenn hennar


„Guðrún hét kona og var Þórðardóttir. Hún bjó á þeim bæ er heitir í Arnarnesi út á strönd frá Svarfaðardal. Hún var kvenna vænst og kurteisust. Hún átti þar bæði land og bú. Hún var ung kona og hafði tekið við föðurleifð sinni.“
Þannig segir frá í upphafi 101. kafla Sturlunga sögu (útgáfu Svarts á hvítu 1988), í Guðmundar sögu dýra. Ekki verður annað sagt en að klausa þessi sé mjög athyglisverð. Guðrún var sem sé ung kona, sem átti bæði jörð og bú sem hún hafði erft eftir föður sinn og rak búið sjálf.
Skömmu síðar segir í sögunni frá annarri konu, Þorgerði Þorgeirsdóttur á Brattavelli á Árskógsströnd. Þorgerður átti einnig landið sem hún bjó á, Brattavelli. Hún var móðir eiginkonu Helga prests í Stærra-Árskógi, sem hét Þórdís. Brattavöllur eða Brattavellir var ekki stór jörð, 20 hundruð að mati skv. jarðabókum frá síðari hluta 17. aldar, en telst 24 hundruð í Jarðabók Árna og Páls.
Arnarnes var stærri jörð, 33 hundruð og 40 álnir samkvæmt Jarðabókinni áðurnefndu, og þar eru sagnir um að hafi verið bænhús. Þangað lágu á miðöldum einhverjar jarðir til sóknar að því er virðist. Hvorug jörðin var hins vegar neitt höfuðból. Þetta voru báðar tiltölulega venjulegar jarðir af meðalstærð.
Guðrún á Arnarnesi var sem sagt góður kvenkostur, enda leið ekki á löngu þar til karlmenn komu til sögunnar. Fyrst greinir frá því að Símon Þorvarðsson, sem kallaður var kamphundur, bað Guðrúnar. Símoni er þannig lýst að hann hafi verið vinsæll maður. Jafnræði hafi þótt í hjónabandinu, þ.e. þau Guðrún og Símon höfðu svipaða þjóðfélagsstöðu að mati þeirra sem segja söguna eða eru heimildarmenn hennar. Guðrún sagði já og Símon flutti heim til hennar í Arnarnes.
Adam var þó ekki lengi í Paradís, því samkomulagið fór strax að versna og fljótlega fór Guðrún að flýja heimilið öðru hverju, en kom heim á milli. Skyldi Símon hafa beitt hana ofbeldi? Það er ekki víst, en annað eins þekkist úr Íslendingasögum, samanber kinnhest Gunnars á Hlíðarenda. Þó lagaðist sambúðin og segir sagan að þau hafi verið saman tvo vetur. Síðari veturinn hafi sambúðin gengið betur.
Því miður lauk hjónabandinu skyndilega og vofeiflega. Þegar kom fram á föstu síðari veturinn skorti föstumat og lagði Guðrún til að Símon maður hennar færi út á Siglunes til að sækja föstumat, en þar bjó faðir hans og þar var gnægð matar. Símon fór á bát út eftir firði, en báturinn sigldi á stein, brotnaði, og Símon fórst með tveimur húskörlum sínum. Guðrún var orðin ekkja.
Ekki leið á löngu þar til vonbiðlar gáfu sig fram, og sama sumar bað Guðrúnar maður sá er Hrafn hét og var Brandsson. Hann var vestan úr Skagafirði „úr sveit Gríms Snorrasonar“, og hafði Grímur hlutast til um bónorðið. „En Þorvarður Þorgeirsson var að umsjá með henni og færðu þeir mágar þau mál saman að Guðrún var föstnuð Hrafni.“ Guðrún virðist sem sagt ekki hafa haft mikið að segja um ráðahaginn, heldur hafi forráðamaður hennar úr hópi karla, Þorvarður Þorgeirsson, ráðið öllu um hann.
Sagt er í sögunni að brúðkaupsveislan hafi staðið á Hofi, þar sem Grímur átti heima, og að Guðrún hafi „hlaupið úr hvílu hina fyrstu nótt er Hrafn var innar leiddur.“ Þau fóru til Arnarness til „bús síns“. Hrafn tók við stjórn búsins. Guðrún var ekki ánægð með sambúðina, og um sumarið fór hún vestur til Hofs í Skagafirði (væntanlega Hofs á Höfðaströnd) og leitaði skjóls hjá Grími sveitarstjóra Hrafns. Grímur tók henni vel og var hún þar um hríð.
Síðan segir í sögunni: „Þá varð hún þess vör að Grímur ætlaði til skips í Eyjafjörð með hana. Hún vildi það eigi. Þá hljóp hún á brott á launog varð eftir fararskjóti hennar. Hún nam eigi fyrr staðar en hún kom út á Siglunes til Þorvarðs kamphunds (föður Símonar, fyrri manns hennar), kom þar grátandi og kvaðst þar unna hvívetna af Símoni. Þorvarður tók við henni og var hún þar lengi.“
Í næsta pistli heldur áfram að segja frá örlögum Guðrúnar á Arnarnesi. Ekki verður annað sagt en saga hennar sé athyglisverð og gefi til kynna ýmislegt um stöðu kvenna sem voru sjálfseignarbændur á miðöldum.

fimmtudagur, 22. október 2015

Prestar af ýmsu tagi á 12. öld.


Á köflum gefur Guðmundar saga dýra innsýn í ástir og örlög kvenna og karla sem er fremur sjaldgæf í Sturlunga sögu. Guðmundur tók sér frillu úr Svarfaðardal, sem honum leist „væn og oflátleg“, þ.e. væn og góð með sig, og setti niður í Myrkárdal. Sú hét Þorgerður Ásbjarnardóttir, en annars er lítið eða ekkert vitað um hana.
Guðmundar saga dýra gefur einnig innsýn í stöðu presta á þessum tíma. Í Stærra-Árskógi á Árskógsströnd bjó Herdís, sem var ekkja Brands nokkurs Gellissonar. Sagan segir að Brandur hafi verið veginn í kirkjudyrunum í Stærra Árskógi. Á bænum bjó einnig Helgi prestur Halldórsson, og virðist hafa verið nokkurs konar bústjóri eða ráðsmaður Herdísar, því tekið er fram að hann hafi ekki verið eiginmaður hennar. Helgi átti eiginkonu, þótt prestur væri, og hét hún Þórdís. Þetta var almennur siður á þeim tíma.
Fjölmörg dæmi eru um að kaþólskir prestar og biskupar áttu eiginkonur eða frillur, og er Jón Arason, síðasti kaþólski biskupinn, eitt þekktasta dæmið. Margir upphafsmenn íslenskra bókmennta, eins og Sæmundur fróði í Odda voru prestar, en líka höfðingjar á veraldlega vísu, giftir og áttu börn og buru. Frá þeim voru síðan miklar ættir.
Frá árinu 1143 hefur varðveist skrá yfir prestvígða höfðingja, og Jón Sigurðsson rekur í 1. bindi hins Íslenska fornbréfasafns (frá bls. 180) ýmislegt sem vitað er um þá. Skrá þessi er í skjalinu sögð vera komin frá Ara fróða („Svo sagði Magnús biskup Ara fróða er sjálfur var við andlát hans“), sem sjálfur var bæði prestur og héraðshöfðingi, en hann telur sig ekki upp í henni heldur son sinn. Sá hét Þorgils.
Alls eru taldir 40 íslenskir prestar í skránni, 10 í hverjum fjórðungi. Í fornbréfasafninu er þessi skrá mikilvæg heimild um öfluga, íslenska stétt lærðra manna og héraðshöfðingja. Unnt er að rekja ættir ýmissa þeirra til landnámsmanna. Einnig áttu margir þeirra afkomendur á 13. öld sem voru höfðingjar og fyrirmenn þá. Dæmi um þetta er Oddur Gissurarson, sem talinn er Austfirðingur í skránni og andaðist 1180. Dóttursonur Odds var Jón Sigmundarson hinn síðari, faðir Orms Svínfellings og Brands biskups á Hólum, sem talsvert kemur við sögu Svarfaðardals á 13. öld. Launsonur Jóns var Þórarinn, faðir Þorvarðar Þórarinssonar á Hofi í Vopnafirði, sem „var einn mestur virðingamaður þegar konungsöldin hófst“, segir Jón Sigurðsson.
Tveir synir Sæmundar í Odda, þeir Loftur og Eyjólfur eru í skránni. Loftur átti Þóru, dóttur Magnús konungs berfætta, og áttu þau m.a. Jón, sem var mesti höfðingi á Íslandi á sinni tíð og „er þaðan kominn mikilll ættbálkur, sem rekja má til vorra tíma“, segir Jón forseti. Eyjólfur bjó í Odda og andaðist 1158, en hjá honum lærði Þorlákur biskup helgi og margir fleiri.
Prestvígsla þessara manna mun hafa eflt ættir þeirra mjög. Þeir áttu sjálfir þá staði sem þeir sátu og voru sjálfráða um flest mál sín. Þessir klerkar sniðgengu margt það sem að skyldum presta laut, t.d. þjónusta sjúka og grafa lík, stunda sálgæslu eða skriftir og ekki hlýtt kalli annarra kirkjueigenda um að syngja tíðir, segir í sögu Kristni á Íslandi, 1. bindi. Þar segir: „ ... í skugga langflestra vígðra höfðingja (stóðu) prestar af lægri stigum er báru hitann og þungann af prestþjónustunni. ... Erlendis sinnu hefðaðklerkar oft kalli sínu aðeins að litlu leyti en létu staðgengla eða aðstoðarpresta af lágum stigum þjóna í sinn stað.“ (bls. 238).
Sá siður kaþólsku kirkjunnar að banna klerkum að kvænast er merkilegur. Postularnir voru flestir kvæntir, en Páll postuli var raunar ókvæntur og hreinlífur, var ekki við kvenmann kenndur. Einlífi presta og munka var stundað í rómverskri kaþólsku, en grísk-kaþólska kirkjan eða orþódoxa kirkjan leyfði prestum að kvænast, og einnig sú persneska sem varð sérstök kirkjudeild á 5. öld. Sumar kirkjudeildir leyfðu kvæntum mönnum að verða prestar, en tækju þeir prestvígslu, sem þeir gerðu oft á efri árum, skyldu þeir ekki stunda kynlíf með konum sínum eftir það.
Sérréttindi klerka náðu ekki einungis til hreinlífis, heldur skyldu þeir forðast að hafa veraldleg völd, og þeir voru friðhelgir, sérstakar refsingar lágu við því að ráðast á klerka. 12. aldar íslenskir hefðarklerkar voru utan við þetta regluverk, væntanlega líkt og fjöldi stéttabræðra sinna erlendis á sama tíma.
Helgi prestur á Stærra-Árskógi og Ormur Fornason, prestur á Urðum seint á 12. öld hafa væntanlega verið hefðarklerkar. Ekki er getið annarra presta á þessum stöðum, presta af lægri stigum sem sinntu hinni raunverulegu prestþjónustu, og voru eflaust bæði á Stærra-Árskógi, Urðum, Völlum og öðrum kirkjustöðum í Svarfaðardal og nágrenni. Ekki er ljóst hvort þessir prestar af lægri stigum voru almennt kvæntir.

miðvikudagur, 14. október 2015

„sá skaplöstur sótti Guðmund að hann elskaði konur …“


Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur hélt áhugavert erindi í erindaröð Sagnfræðingafélags Íslands, sem meðal annars fjallaði um áhrif kristni á hugmyndir um einkalíf, t.d. á sviði kynlífs. Kynlíf hafi stundum farið fram fyrir opnum tjöldum í heiðnum sið, en með kristninni hafi komið fram krafa um aukið einkalíf hjóna. Hún tengdi þetta við þróun húsagerðar, breytt viðhorf á þessu sviði hefðu átt þátt í því hvernig húsaskipan þróaðist, og íveruhús þróuðust úr víkingaaldarskálum, með í meginatriðum einu rými þar sem flest störf, samvera og samlíf fór fram, í gangabæi, þar sem tilveran var meira hólfuð í sundur.
Í fyrirlestrinum bendir Steinunn á að höfðingjar hafi lengi þverskallast við að taka upp kristilegt líferni, og fengu ýmis konar undanþágur, leyfi og bréf hjá kirkjunni upp á undantekningarnar. Það var öflugt vopn í höndum kirkjunnar að gera kröfu um siðvendni á þessu sviði. Þekkt eru ummæli Þorláks Skálholtsbiskups Þórhallssonar um búfjárlifnað höfðingja, en Ragnheiður systir hans var einmitt ein af frillum Jóns Loftssonar, sem var mestur höfðingja hér á landi á seinni hluta 12. aldar. Jón var af konungaættum, móðir hans Þóra var óskilgetin dóttir Magnúsar berfætts Noregskonungs (hann var konungur 1093-1103). Eitt barna þeirra Ragnheiðar og Jóns var Páll, sem síðar varð Skálholtsbiskup. Jón þessi bjó í Odda á Rangárvöllum. Sonur Jóns, Sæmundur í Odda hélt líka frillur. Þær bjuggu sín á hverju höfuðbóli á valdsvæði Oddaverja í Rangárþingi, og stóðu þar fyrir búi.
Ýmsar sögur eru í Sturlungu um vinfengi höfðingja við konur. T.d. átti Sighvatur Sturluson, bróðir Snorra rithöfundar, í vinfengi við Helgu nokkra Gyðudóttur á Brjánslæk á Barðaströnd, og útvegaði henni kvikfé, því hún átti nóg lönd, en vantaði fé til að nýta þau. Helga var semsagt eignakona, höfðingskona. Mjög líklegt er að það hafi styrkt vináttuna.
Guðmundur dýri goði á Bakka í Öxnadal átti eiginkonu, segir í Guðmundar sögu dýra. Segir frá því að „sá skaplöstur sótti Guðmund að hann elskaði konur fleiri en þá er hann átti. Hann átti Arndísi dóttur Páls prests Sölvasonar úr Reykjaholti.“ Páll þessi Sölvason hafði meðal annars staðið í deilum við Hvamm-Sturlu, ættföður Sturlunga og leitað liðsinnis áðurnefnds Jóns Loftssonar. Jón þvingaði Sturlu til sátta við Pál en bauð í staðinn að fóstra Snorra, sem ólst því upp í Odda til 19 ára aldurs.
Í Guðmundar sögu dýra segir:
Guðmundur átti fjölda þingmanna út um Svarfaðardal og náfrændur og fór þannig að heimboði haust og vor. Og eitt vor var það þar að heimboði að honum bar fyrir augu konu þá, er honum leist bæði væn og oflátleg er Þorgerður hét og var Ásbjarnardóttir ... Guðmundur tekur hana og hefir við sér og setur hana niður í Myrkárdal.
Arndís var auðvitað engin hver sem er og þar að auki prestsdóttir þannig að þetta hefur ekki þótt mjög viðeigandi hegðun af hálfu Guðmundar.
Frilluhlutverkið var á margan hátt vel skilgreint hlutverk, tengdi meðal annars saman fjölskyldur og gaf frillunum stekari stöðu en ella, samkvæmt því sem Auður Magnúsdóttir segir í grein sinni um kvennamál Oddaverja í greinasafninu Kvennaslóðir. Vera má að Þorgerður hafi gegnt svipuðu hlutverki í Myrkárdal og frillur Sæmundar í Odda, verið eins konar framkvæmdastjóri fyrir búinu í Myrkárdal og ef til vill jörðum sem undir Guðmund heyrðu framan til í Hörgárdal. Guðmundur bjó jú á Bakka í Öxnadal og hefur kannski ekki alltaf auðvelt með að sinna málum í Hörgárdal. Þá gat verið hentugt að hafa röggsama frillu við stjórnvölinn. Ekki er sagt frá því hvernig Arndísi líkaði þetta. Búast má við að Þorgerður þessi hafi verið af vönduðum svarfdælskum ættum, ef til vill tengd helstu valdaætt í Svarfaðardal á þessum tíma, Fornungum, og að þetta hafi styrkt tengsl Guðmundar við stuðningsmenn sína þar.
Ætlast var til þess af höfðingjum á 12. öld að þeir væru umsvifamiklir í kvennamálum, en viðhorf á því sviði hafa verið að breytast þegar Guðmundar saga dýra var skrifuð. Hún er gæti hafa verið skrifuð af manni sem var kunnugur kenningum kirkjunnar um helgi hjónabandsins og studdi þær.

þriðjudagur, 6. október 2015

Svarfdæla mál


Í Íslenskum annálum fyrir árið 1127 stendur (í Annales Reseniani): „Svarfdæla mál.“ Í öðrum annál, Annales regi, stendur fyrir sama ár: „Svarfdæla skærur.“ Svipaðar athugasemdir eru í fleiri miðaldaannálum. Þessar afar knöppu lýsingar eru eina vitneskjan sem við höfum um atburði sem urðu í Svarfaðardal árið 1127, og voru væntanlega nægilega mikilvægar á landsvísu til að menn myndu þá og merktu í annála sér til minnis og upprifjunar. Hvenær urðu Svarfdæla skærur? Allir vissu þá hverjir áttu í þeim, svo það þurfti ekkert að skrifa það. En ágætt að punkta hjá sér hvenær þær urðu. Síðan var ekkert meira um þetta skrifað, og allir dóu sem vissu hverjir áttu í Svarfdæla skærum. Enginn veit það lengur. 
Líklegt er að Svarfdæla mál hafi sem sagt haft eitthvað að segja út fyrir héraðið, niðurstöðurnar skipt máli fyrir landspólitíkina, höfðingjar í Skagafirði hafa ef til vill stutt þann eða þá sem töpuðu og höfðingjar í Eyjafirði þann eða þá sem unnu. Eða öfugt. Kannski hafa bæði Haukdælir og Oddaverjar líka reynt að skipta sér af málum, báðar þessar ættir voru komnar fram og sérstaklega Haukdælir ansi miklir fyrir sér. Síðan var einn öflugur og kunnur höfðingi í Húnaþingi, Hafliði Másson á Breiðabólsstað. Hafliði dó árið 1130 þannig að hann gæti vel hafa skipt sér af málum í Svarfaðardal árið 1127. Hann var þekktur fyrir að hafa staðið fyrir ritun fyrstu skrifuðu gerðar þjóðveldislaganna, og var sú gerð kölluð Hafliðaskrá.
Einnig átti Hafliði í miklum erjum við Þorgils Oddason goða í Saurbæ, og um það fjallar Þorgils saga og Hafliða. Frægt er þegar kom til átaka milli þeirra höfðingjanna á Alþingi árið 1121, að Þorgils hjó þrjá fingur eða hluta af fingrum af Hafliða, og varð að samkomulagi að Hafliði fengi sjálfdæmi um bætur fyrir líkamstjónið. Hann gerði sér bætur upp á 240 hundruð, sem var álíka og verð á tíu eða tólf meðaljörðum eða svo. Ansi ríflegt, enda var talað um að „dýr myndi Hafliði allur“, og er enn haft að orðtaki ef eitthvað þykir óheyrilega dýrt eða kostnaðarsamt.
Um hvað skyldu Svarfdælaerjur hafa staðið? Til að átta sig á ákveðnum vinkli varðandi það skal bent á að höfðingjar gerðu bandalög milli héraða. T.d. studdu Guðmund dýra ákveðnir höfðingjar um allt land, á meðan aðrir studdu Önund á Laugalandi, og stór hópur höfðingja stóð að baki Hafliða Mássyni á meðan annar stór hópur stóð að baki Þorgils Oddasyni.
Líklegast hafa verið einhver átök milli höfðingja í Svarfaðardalnum sjálfum 1127. Bakgrunnur þeirra átaka gæti hafa verið deila um auð og/eða völd. Það er svona 90% líkur á því, kannski meira. Um hálfri öld síðar gefa Guðmundar saga dýra og Prestssaga Guðmundar Arasonar góða innsýn í svarfdælskt samfélag (a.m.k. við það sem fram að því er hægt að fá, sem er eiginlega ekkert ritað), og þá er þar ótvírætt við völd höfðingjaætt. Þessi höfðingjaætt, Fornungar, var tengd Guðmundi dýra, höfðingja á Bakka í Öxnadal, nánum fjölskylduböndum, því Forni, ættfaðirinn, var giftur systur Guðmundar. Fornungar sátu á þremur höfuðbólum í Svarfaðardal, Völlum, Urðum og Sökku. Á Tjörn bjó Sumarliði Ásmundarson sem einnig virðist hafa verið í hópi höfðingja. Hann var líka frændi og þingmaður Guðmundar dýra.
Að sumu leyti virðist sem meginstuðningslið Guðmundar dýra hafi verið í Svarfaðardal, allir höfðingjar dalsins fylgdu honum og hann virðist hvergi hafa haft jafn traust fylgi. Leigumorðingi Önundar, Sölvi sá sem vó Glúm sauðamann Jóns Fljótagóða í Holti í Fljótum og sagt er frá snemma í Guðmundar sögu dýra varð að laumast um Svarfaðardal í kulda um miðjan vetur og þorði hvergi að leita þar heim á bæi, en þegar inn í Hvammshrepp var komið (líklega inn fyrir Fagraskóg) var honum fylgt á milli bæja til Önundar í Lönguhlíð.
Spurningin er hvort Forni ættfaðir valdaættarinnar í Svarfaðardal um 1190 hafi verið meðal þeirra höfðingja sem stóð í Svarfdælaerjum um 1127, eða hvort hann var afkomandi einhverra þeirra. Það er ekki ljóst að svo komnu máli, en gæti komið í ljós við frekari rannsóknir, sérstaklega ef ættartölur eru til um þessa ætt. Hitt er athyglisvert að einu þingmennirnir sem eru nefndir í Svarfaðardal í Guðmundar sögu virðast vera höfðingjar og búa á höfuðbólum eða stórbúum.