föstudagur, 28. október 2016

Staða Dana á Íslandi: Var hún sterkari á 19. öld en fyrr eða síðar?


Hér á svarfdælsku miðaldabloggi hefur heldur verið lítið að gerast undanfarið, enda nóg að gera við að ganga frá bók um svarfdælskar miðaldir. Hún er nú á leið í prentun og kemur út fyrir jól.
Hugmyndin er að taka þráðinn upp að nýju, en með nokkuð öðru sniði: Ramminn verður stærri, bloggið mun leika lausum hala og verða meir almennt sagnfræðiblogg, vettvangur fyrir ýmsar vangaveltur höfundar á þessu sviði. Svarfaðardalur verður svo sem auðvitað aldrei fjarri og vonandi verður tilefni til að fjalla um svarfdælska sögu með ýmsum hætti - að minnsta kosti tengja byggðarlagið inn í umræðuefnið hverju sinni.
Höfundur er þáttakandi í verkefni sem fjallar um sambúð manns og umhverfis í Mývatnssveit. Þetta verkefni er þverfaglegt sem kallað er, þ.e. þeir fræðimenn sem eru í rannsóknarhópnum koma hver úr sínu fagi, bókmenntafræðingurinn Viðar Hreinsson, fornleifafræðingurinn Megan Hicks, veðursagnfræðingurinn Astrid Ogilvie og vistfræðingurinn Ragnhildur Sigurðardóttir auk undirritaðs. Meðal þess sem til athugunar er má telja votlendi umhverfis Mývatn og sérstaklega votlendið sunnan við Mývatn sem nefnist Framengjar. Þetta tengir sögu Mývatns við sögu Svarfaðardals, því votlendi var líka mikilvægt í svarfdælskri sögu. Svarfdælingar geta þó ekki státað af áveitukerfi eins og Mývetningar, en Benedikt Sigurðarson frá Grænavatni sýndi okkur ýmsar leifar þess í vettvangsferð rannsóknarhópsins norður til Mývatns seint í ágúst.
Mývargurinn var óvenju friðsamur og meinlaus og við gátum því í góðum friði og góðu veðri skoðað votlendið sunnan við Mývatn, gulstörina þar og tekið sýni af gróðrinum til frekari athugana. Benedikt sýndi okkur leifar af stíflum sem notaðar voru til að stýra rennsli Krákar og veita vatni hennar á engjalöndin. Áveiturnar voru í notkun langt fram á 20. öld. Síðan fórum við á skjalasafnið á Húsavík og skoðuðum mývetnsk, handskrifuð héraðsblöð frá upphafi 20. aldar. Þar kemur skýrt fram hvað Mývetningar töldu votlendið mikilvægt í búskap sínum.
Það sem hvað mesta athygli hefur vakið okkur fræðinganna í hópnum er það hversu gríðarlegur vöxtur var í mývetnsku efnahagslífi á 19. öld, svo sem eins og víða annars staðar á landinu á þeim tíma. Þetta kom meðal annars fram í stóraukinni nýtingu votlendis til útheysgerðar. Heimildir frá 18. öld sýna hins vegar að heldur var lítið að gerast og dauft yfir mannlífi í Mývatnssveit á þeirri öld. Andstæðan við 19. öldina virðist við fyrstu sýn vera nokkuð skörp, en vera má að það sé missýning og nánari athugun gefi til kynna einhverjar þær hræringar, sem á 19. öld gátu af sér einhverja öflugustu félagshreyfingu sem komið hefur fram hér á landi.
Á 18. öld var einokunarverslunin við lýði hér á landi og miklar heimildir til um verslun bænda við hana, þar á meðal verslun Mývetninga. Greining á þessum heimildum sýnir að einokunarverslunin var ef til vill fyrst og fremst tæki í höndum íslensku yfirstéttarinnar, landeigenda, til að koma ullar- og prjónavörum og fiski sem þeir fengu greiddar í landskuld í verð. Þáttaka almennra bænda í versluninni var afar lítil, stundum engin. Mývetningar tóku hins vegar nokkuð almennt þátt í versluninni, sem er ein vísbending um að ef til vill hafi síðari hræringar verið byrjaðar að láta á sér bæra. Verslun þeirra var alls ekki mikil frekar en annarra bænda.
Á 19. öld breyttist þetta allt. Þá hljóp mikill vöxtur í verslun með hvers konar afurðir frá Íslandi, og meðal annars sauðfjárafurðir Mývetninga, allt frá um 1820. Athyglisvert er að það gerðist allt undir ægishjálmi danskra verslunarfyrirtækja, sem einokuðu verslunina hver á sínu landsvæði. Í Þingeyjarsýslum var það fyrirtækið Örum og Wulff sem bæði stýrði vextinum og naut góðs af honum. Bændur nutu þess líka, en ekki í þeim mæli sem þeim fannst að hægt væri; því hófst hreyfing gegn danska valdinu sem lauk með því að dönsku fyrirtækin misstu tökin og kaupfélög bændanna sjálfra tóku verslunina yfir.
Á þessum tíma var dauft yfir íslenskri yfirstétt, sem hafði misst spón úr aski sínum. Dönsku verslunarfyrirtækin rökuðu til sín gróða en lágar landskuldir voru einu tekjur og lélegt hlutskipti íslensku landeigendastéttarinnar. Líklega hefur danska valdið á Íslandi aldrei verið sterkara en einmitt á þessum tíma, 1820-1880, og Ísland aldrei nær því að vera nýlenda Dana en þá. Þetta þarf að kanna nánar, en ég varpa þessu fram hér til umhugsunar, þetta er ennþá tilgáta.

miðvikudagur, 27. janúar 2016

Urðir á 14. öld: Höfuðból með glans


Urðir hafa yfir sér alveg sérstakan glans á 14. öld. Þá bjó þar lögmaðurinn, stundum hirðstjórinn Þorsteinn Eyjólfsson, sem í nær hálfa öld frá 1356 var einn helsti valdamaður landsins. Hann átti í átökum sem færðu hann hvað eftir annað í hættu hérlendis og erlendis, en hann virðist alltaf hafa borið hærri hlut eða sloppið óskaddaður úr deilunum.
Þorsteinn bjó á Urðum að því er best er vitað. Hann átti líka Grund í Svarfaðardal, hluta úr Hálsi í Svarfaðardal og sennilega Grýtubakka í Höfðahverfi, og að öllum líkindum jarðir um Höfðahverfi, í Fjörðu, Fnjóskadal, Svalbarðsströnd og víðar. Vitað er að hann átti jarðir í Kræklingahlíð. Urðakirkja á 14. öld átti tvær jarðir og hlut í þeirri þriðju. Hún átti Skröflustaði og Hól fram, og hlut í Auðnum.
Ekki er unnt að fá heildarmynd af jarðeignum Þorsteins. Það er ekki einu sinni svo gott að til sé yfirlit yfir eignir annarra höfðingja á 14. öld. Einu upplýsingarnar um jarðasöfn eða jarðagóss frá þeirri öld eru frá kirkjustofnunum eins Munkaþverá, Kirkjubæjarklaustri, Þykkvabæjarklaustri, Viðeyjarklaustri og Hólastól. Sé hins vegar miðað við jarðeignir höfðingja af hans standi á 13. öld og svo þeirri 15., en frá báðum þeim öldum eru til skrár eða upplýsingar um eignir veraldlegra höfðingja, gæti Þorsteinn mjög lauslega áætlað hafa átt 1000-2000 hundruð í jörðum, jafnvirði 50-100 meðaljarða.
Sonarsonur Þorsteins, Eyjólfur Arnfinnsson, átti að öllum líkindum um 1000 hundruð í jarðeign á síðari hluta 15. aldar. Upplýsingar um eignir hans eru nokkuð góðar og tæmandi úr fornbréfum. Hvergi kemur hins vegar fram bústærð á höfuðbólum þeirra Urðamanna eins og Urðum eða Grýtubakka. Það sama gildir um bústærðina og jarðeignir, slíkar upplýsingar eru aðeins til frá kirkjustofnunum, t.d. Völlum, á 14. öld. Hins vegar eru til upplýsingar um bústærð á höfuðbólum höfðingja bæði á 13. og 15. öld.
Á Völlum voru 25 kýr og 120 fjár árið 1394, og ellefu geldfjárkúgildi (e.t.v. rúmlega 100 sauðir). Vellir voru talsvert meira en venjulegur bóndabær á þessum tíma, þar var rekinn prestaskóli og bærinn hefur fremur líkst smáþorpi en bóndabæ, e.t.v. með allt að 50-70 íbúum. Sama gildir um Urðir. Á 15. öld voru allt að 50 kýr á höfuðbólum stórhöfðingja og 200 ær. Slík höfuðból voru fjölmenn, og valdamenn héldu á þessum tíma sveinalið, sem ef til vill hafa haldið til á höfuðbólunum, eins konar setulið til að tryggja öryggi höfðingjanna.
Það má því geta sér til að á Urðum hafi verið talsvert stórt bú, nokkrir tugir kúa og 100-150 ær. Þar hafi búið vinnufólk sem sinnt gat öllu þessu fé, sem og ýmsir starfsmenn, fjölskyldur þeirra, sveinalið, prestar, og síðan sjálf höfðingjafjölskyldan. Eins og Vellir hafa Urðir sennilega fremur líkst smáþorpi en venjulegum bóndabæ. Þar var fjöldi fólks og mikið um að vera allt árið. Gestakomur og umferð mikil bæði til og frá Eyjafirði um Heljardalsheiði, og ekki síst gestakomur heim að Urðum, menn að sinna ýmsum erindum sem þeir áttu við höfðingjann.
Urðir voru mjög líklega aðalbækistöð sveinaliðs Urðamanna. Sveinalið voru eins konar einkaherir sem hver höfðingi varð að hafa sér til fulltingis. Ekki var hættandi á annað. Skærur, árásir og mannslög voru algeng á þessum tíma, sérstaklega meðal höfðingjastéttarinnar. Það var algengt að menn létu vopnin tala á mannamótum og þingum, eða réðust heim á höfuðból eða bændabýli og létu greipar sópa.
Urðir voru því herstöð, og þar var mikil verðmæti að verja, tekjur af 50-100 jörðum sem greiddar voru í vaðmáli, skreið og ýmiskonar öðrum varningi, auk skatttekna sem hirðstjóri innheimti fyrir konung, á meðan Þorsteinn gegndi því embætti. Urðir voru aðalstjórnstöð í stóru jarðagóssi, höfuðstöðvar stórfyrirtækis.

mánudagur, 18. janúar 2016

Hnjúksbóndinn og klaustrið


Í Landbúnaðarsögu Íslands, 1. bindi eftir undirritaðan er sagt frá samskiptum bóndans á Hnjúki, Erlends Bergþórssonar, við landeigandann, Möðruvallaklaustur. Þetta var árið 1398, rétt fyrir Svartadauða, nánar tiltekið föstudaginn fyrir Pálmasunnudag það ár. Séra Sveinn nokkur kærði þá til klaustursins að Erlendur hefði setið á „staðarins jörðu ótekinni að heimild“, Hnjúki. Þar hefði hann haldið leigukúgildum heimildarlaust, fyrir staðnum frá fardögum og fram að föstudeginum fyrir Pálmasunnudag árið eftir, sem sagt nærri heilt ár.
Séra Sveinn kærði málið til Steinmóðs officialis Þorsteinssonar prests Hólakirkju. Séra Sveinn lýsti því í kærunni að hann hefði að vísu leigt Erlendi jörðina eitt ár, árið áður, 1396-97. Árið eftir krafðist séra Sveinn þess að Erlendur færi af jörðinni, og afhenti klaustrinu leigukúgildi þess á ný. Sveinn hélt því fram að hann hefði sagt Erlendi þetta þegar haustið 1396, en hann hefði ekkert sinnt því að fara af jörðinni í fardögum 1397. Erlendur viðurkenndi að hafa setið á jörðinni og haldið kúgildi klaustursins sumarið 1397 og veturinn 1397-98, í óleyfi að því er Sr. Sveinn sagði.
Steinmóður kvað upp þann úrskurð að Erlendur hefði ekki haft rétt til að sitja Hnjúksjörð á þessum tíma. Sveinn fór fram á að Erlendur yrði bannsettur fyrir vikið, þ.e. að hann hefði fallið í bann af sjálfs síns verki að sitja jörðina ólöglega og yrði því að taka lausn og skriftir.
Skyldi Erlendur flytja frá jörðinni „með allt sitt“ innan fimm nótta og ætti klaustrið allt hey og torf sem finna mætti á jörðinni. Þar að auki skyldi Erlendur borga klaustrinu 15 merkur í sekt, sem var 720 álnir, og 12 aura eða 72 álnir að auki „í landnám“, þ.e. ólöglega setu jarðar. Líka skyldi hann borga fyrir ólöglega heynotkun, og ættu matsmenn að ákvarða þá upphæð. Einnig átti hann að afhenda Séra Sveini öll leigukúgildin sem hann hafði haldið ólöglega.
Kveðið var á í dómnum um að Erlendur skyldi greiða ávöxt eftir kúgildin, veturgamlan sauð eftir hverja á og kálf af hverri kú, „ ... en 12 álnir fríðar af hverju geldfjár hundraði og þar til skyr, smjör og sýru og ull af málnytunni ...“. Fram kemur að hann á að gjalda ull af 15 ám og 10 sauðum,  alls átta fjórðunga ullar. Einnig smjör, skyr og sýru af þessum ám og fjórum kúm, sem hann leigði einnig.
Þetta er sem sagt leiguféð, leigukúgildin í eigu klaustursins, 15 ær, 10 sauðir og fjórar kýr.
Hér er Hnjúkur sem sagt orðin leigujörð, seint á 14. öld, en mestar líkur eru á að jörðin hafi verið sjálfseignarjörð á 10. og 11. öld og jafnvel lengur. Það segir okkur bænhúsið sem var á staðnum samkvæmt heimildum frá 15. öld. Ýmsar jarðir sem höfðu verið sjálfseignarjarðir lengi virðast hafa lent í eigu klaustra og biskupsstóla á 14. og 15. öld. Bóndi sem bjó á 30 hundraða jörð eins og Erlendur var í hópi betri bænda, og því er meðferðin á honum athyglisverð. Séra Sveinn hefur viljað rýma fyrir einhverjum öðrum bónda, betri vini sínum, annaðhvort frænda eða skjólstæðingi, en Erlendur hefur greinilega ekki fengið nægilega skýr skilaboð.
Veldi klaustursins hefur verið mikið fyrst það gat leyft sér svona framkoma gagnvart leiguliða sínum. Klaustrið hótaði með bannsetningu, og slíkt var auðvitað ekkert gamanmál. Menn voru þar með komnir út úr kirkjunni og sál þeirra átti ekki vísa vist á himnum. Erlendur skuldaði stórfé eftir þetta Hnjúksævintýri sitt og dóminn og hefur orðið að greiða það til að eiga innangengt í himnaríki og lenda ekki í verri staðnum.

sunnudagur, 10. janúar 2016

Skammvinn gullöld Möðruvallaklausturs í Hörgárdal á 14. öld


Um 1400 átti Möðruvallaklaustur í Hörgárdal 15 jarðir eða svo í Svarfaðardal og var sennilega stærsti einstaki jarðeigandinn á þessum slóðum. Möðruvellir urðu síðan fyrir gríðarlegu áfalli í Svartadauða og náðu sér aldrei sem kirkjustofnun en áttu alltaf slatta af jörðum í dalnum, sem svo urðu hluti af Möðruvallaumboði eftir að konungsvaldið tók yfir klaustrið 1550 og lagði niður klausturreksturinn. Hann samrýmdist ekki lúterskum grundvallarreglum.
Möðruvellir í Hörgárdal eru sennilega ein af landnámsjörðum í Hörgárdal. Landamerki jarðarinnar benda til þess. Möðruvellir eiga landræmu meðfram Hörgá niður með ánni fyrir neðan margar nágrannajarðir sínar, alveg niður að Ósi. Það gætu verið leifar af upphaflegri landareign Möðruvalla, sem hafi náð jafnvel norður að Hvammi, sem er önnur landmikil og hátt metinn jörð á þessum slóðum. Um það er erfitt að fullyrða.
Fátt er vitað um Möðruvelli á tímabilinu 870-1150 eða svo en mikill áhugi beinist nú að þeim vegna hinna umfangsmiklu klausturrannsókna sem eru í gangi á vegum Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns. Möðruvellir urðu staður og aðsetur sóknarkirkju á 12. öld, þ.e. kirkjustaður með stórri sókn sem náði líklega um verulegan hluta Hvammshrepps. Annar kirkjustaður í Hvammshreppi var Arnarnes. Þar bjuggu höfðingjar og t.d. settist Sighvatur Sturluson þar að þegar hann flutti fyrst í Eyjafjörðinn 1215 og gerðist þar höfðingi.
Um 1290 eða svo voru Möðruvellir ennþá staður, eins og kemur fram í Lárentíusar sögu Kálfssonar, en árið 1295 var stofnað þar klaustur. Ekkert er vitað um staðinn Möðruvelli, t.d. hverjar voru jarðeignir staðarins áður en klaustur var stofnað þar og máldagi Möðruvalla er ekki í Auðunnarmáldögum. Fremur lítið hefur varðveist af skjölum frá fyrstu tíð Möðruvalla, og t.d. er ekki vitað hvaða jarðir voru gefnar til klaustursins í upphafi. Það er vitað í öðrum tilfellum, t.d. hvaða jarðir nunnuklaustrið á Reynistað fékk þegar það var stofnað 1296, ári síðar en Möðruvallaklaustur.
Fram kemur í Lögmannsannál að hluti jarða klaustursins var tekinn undan því, m.a. jarðir sem „Egill biskup og Einar prestur“ höfðu gefið því, ef til vill í stofngjöf. Sú ráðstöfun tengdist deilum milli Hólastóls og Möðruvallaklausturs um og upp úr 1330. Hólabiskup hugðist þá flytja klaustrið heim að Hólum en munkarnir á Möðruvöllum mótmæltu því og höfðu sitt fram. Klaustrið var áfram á Möðruvöllum. Þetta er nokkuð áhugavert mál og hefði að öllum líkindum styrkt mjög staðinn á Hólum hefði flutningurinn náð fram að ganga. En Eyfirðingar hefðu ekki verið ánægðir með þá niðurstöðu.
Möðruvallaklaustur óx mjög hratt að auði og jarðeignum og átti að öllum líkindum á milli 70 og 80 jarðir um 1400, flestar í næsta nágrenni í Hörgárdal og á Gálmaströnd, en einnig talsverðan fjölda í Svarfaðardal eins og áður getur og miklu víðar. Þá voru aðeins um 100 ár liðin frá stofnun klaustursins, og eignir þess voru t.d. mun meiri en eignir Munkaþverárklausturs, sem þó var mun eldra, stofnað á 12. öld. Hins vegar lauk þessari gullöld Möðruvalla skyndilega í upphafi 15. aldar þegar Svartidauði hjó sitt mikla högg. Um 1447 átti klaustrið ennþá milli 70 og 80 jarðir, en stór hluti þeirra var í eyði.
Eftir 1447 byggðust aldrei fleiri en rúmlega 50 jarðir eða svo í eigu klaustursins og margar jarðir gengu undan því, t.d. í Svarfaðardal. Margar eyðijarðir klausturins byggðust heldur aldrei aftur, eins og Oddsstaðir sunnan við Öxnhól í Hörgárdal, þar sem dr. Ramona Harrison fornleifafræðingur hefur gert fornleifarannsókn. Oddsstaðir höfðu verið í byggð allt frá 10. öld og var engin kotjörð.

fimmtudagur, 3. desember 2015

Fiskislóðir, hernaður og rán við Eyjafjörð um 1200


Hér hefur að undanförnu verið fjallað um ýmsar sögur úr Guðmundar sögu dýra sem tengjast með einum eða öðrum hætti Svarfaðardal. Ýmislegt efni um Svarfaðardal er líka í Prestssögu Guðmundar Arasonar, en annars eru ekki til margar heimildir um sögu Svarfaðardals eða Eyjafjarðar frá 12. og 13. öld. Skjöl fara fyrst að koma að einhverju marki eftir 1300, sérstaklega með máldagasöfnunum, en fyrsta máldagasafnið fyrir Hólabiskupsdæmi er frá 1318 og er prentað í Íslensku fornbréfasafni, 2. bindi.
Sagnaefnið er hins vegar mjög auðugt og gefur margþætta innsýn í samfélagið í Eyjafirði og Svarfaðardal, sérstaklega við lok 12. aldar. Margir koma við sögu, ekki bara höfðingjar og hefðarprestar. Fjölmargir bóndabæir eru nefndir, ekki bara í Eyjafirði heldur líka Skagafirði, Þingeyjarsýslum og víðar. Rætt er um fiskveiðar, sérstaklega í sambandi við Siglunes, þar sem virðist hafa verið verstöð og jafnvel fiskiþorp. Þar var stórbýli og ef til vill þurrabúðir eða hjáleigur í kring. Miklar fornleifarannsóknir fara nú fram á Siglunesi, því leifarnar eru í hættu vegna sjávargangs og flóða. Slæmt væri að missa þann mikla þátt sögunnar í sjóinn í einhverju norðan stórviðrinu.
Vissa er fyrir því að útgerð var stunduð frá Upsaströnd á 14. öld og nánast örugglega fyrir þann tíma. Sama gildir um Hrísey og Grímsey. Afgjöld af jörðum á þessum slóðum voru greidd í skreið á 14. öld. Vitað er að farið var að flytja út skreið skömmu fyrir miðja 14. öld og gæti það hafa aukið mikilvægi þessara staða. Áður hafði vaðmál verið helsta útflutningsvaran.
Ein tegund bústaða er sérstaklega áberandi í Guðmundar sögu dýra, en það eru víggirt höfuðból. Vellir voru víggirtir með þeim hætti að þar var veglegur kirkjugarðsveggur úr grjóti, og  þegar lið á vegum Brands biskups réðist á staðinn og ætlaði að framfylgja fyrirskipunum biskups um stjórn Valla var búið að efla vígið í kirkjugarðinum með röftum, þ.e. trjábolum. Þrjátíu manns gátu varið staðinn gegn 150 manna liði biskups. Önnur höfuðból höfðu vígi úr torfi, oft tengd við skála eða stofu. Það gilti um Bakka í Öxnadal, Laugaland á Þelamörk, Auðbrekku, Langahlíð, Grund í Eyjafirði og Laufás, sex af þeim höfuðbólum sem sagan hverfist um. Guðmundar saga dýra er sú saga í Sturlungasafninu þar sem mest er fjallað um vígi við höfuðból.
Margra tuga manna lið dvaldi oft á þessum höfuðbólum höfðingjum til verndar. Lítill vafi er á því að höfðingjarnir sem þar bjuggu áttu leigujarðir, og er beinlínis getið um jarðir í eigu Guðmundar dýra, bæði í Öxnadal, Hörgárdal og Norðurárdal í Skagafirði. Tekjur af þeim jörðum hafa að sjálfsögðu runnið til höfðingjans. Í Guðmundar sögu dýra segir líka frá því að Guðmundur dýri átti leigukúgildi hjá bónda í Fagraskógi á Gálmarströnd. Svo fór að bóndinn var veginn vegna þess að hann stóð ekki skil á kúgildinu, að minnsta kosti ekki nægilega góð skil að mati Guðmundar.
Hernaður var stundum fjármagnaður með ránum, eins og lýst er í Guðmundar sögu dýra og mörgum öðrum sögum í Sturlungu. Færi margra tuga eða hundraða manna her af stað þurfti bæði að fæða og klæða herinn og mat var einungis að fá á bóndabæjum. Þá gilti einu hvort bændur áttu jarðirnar eða leigðu þær, einungis varð komið í veg fyrir ránin með nægilega sterku vopnavaldi á móti, og almennir bændur réðu ekki yfir slíku valdi. Hernaður var því mikið samfélagslegt vandamál og almenningi mikið í mun að friður ríkti. Slíkt gæti skýrt mikinn stuðning við kirkjuna, sem boðaði frið og stóð ekki í miklum hernaði, t.d. á 14. eða 15. öld, að minnsta kosti ekki miðað við mikið og ömurlegt hernaðarbrölt höfðingja á 12. og 13. öld. Á þeim tíma var kirkjan orðin langöflugasti jarðeigandi landsins.

mánudagur, 30. nóvember 2015

Hverjir réðu ríkjum í Svarfaðardal á 13. öld?


Eftir að Guðmundur dýri lét af völdum í Eyjafirði 1212 er ekki ljóst hverjir voru helstu höfðingjar þar um slóðir. Þorgrímur alikarl höfðingi á Möðruvöllum í Hörgárdal og helsti andstæðingur Guðmundar um 1200 var tengdur Oddaverjum, systir hans var ein kvenna Sæmundar Jónssonar í Odda.
Ekki er heldur ljóst hvort Guðmundur dýri hafði full völd í Eyjafirði þegar hann lét af völdum þar. Hann vann líklega aldrei afgerandi sigur á óvinum sínum. Síðasta orusta þeirra Þorgríms alikarls var á Grund í Eyjafirði og lauk með því að Þorgrímur og bandamenn hans handsöluðu Guðmundi sjálfdæmi um sættir. Þorgrímur var eftir það félaus og fór vestur í Skagafjörð og er úr sögunni. Stuðningsmenn Þorgríms sátu eftir og kemur ekki fram að þeir hafi játast undir vald Guðmundar að öðru leyti en því að allir guldu þá upphæð sem Guðmundur krafðist til sátta.
Síðustu afskipti Guðmundar af héraðsmálum sem sagt er frá voru varðandi mál í Svarfaðardal, það hver skyldi fara með Velli, hafa þar staðarvöld. Þar lenti Guðmundur og bandamenn hans í átökum við Brand Jónsson Hólabiskup, en svo fór að sátt varð um niðurstöðuna milli Brands biskups og Guðmundar.
Þegar næst fréttist af því hverjir réðu ríkjum í Eyjafirði og þar með Svarfaðardal, árið 1215, voru Sturlungar komnir til sögunnar. Sighvatur Sturluson hafði eflst mjög að völdum vestan lands, bjó fyrst í Hjarðarholti og síðan á Sauðafelli, en báðar jarðirnar eru í Dölum. Hann hafði Snorrungagoðorð og var því goðorðsmaður. Árið 1215 réðst hann til Eyjafjarðar, tók þar við héraðsvöldum og settist að á Möðruvöllum í Hörgárdal ásamt með Sigurði mági sínum Grímssyni. Síðan keypti hann Grund í Eyjafirði og bjó þar til elli. Á meðan hann lifði réði hann ríkjum um allt Norðausturland, bæði Eyjafjörð og Þingeyjarþing.
Athyglisvert er að Sighvatur skuli fyrst hafa sest að á Möðruvöllum, höfuðbóli Þorgríms alikarls, andstæðings Guðmundar dýra, og síðan á Grund í Eyjafirði. Hér hafa tengsl Sturlunga og Oddaverja líklega skipt máli. Oddaverjar höfðu áhrif í Eyjafirði og hafa líklega átt þátt í að Sighvatur tók við völdum þar. Andstæðingar Guðmundar dýra höfðu þar með í raun náð völdum í Eyjafirði.
Í Íslendinga sögu segir hins vegar að þá hafi margir stórbændur verið í Eyjafirði og hafi þeir ýfst heldur við Sighvat. „Þótti þeim hann eiga þar hvorki í héraði erfðir né óðul.“ Nokkuð segir frá málum í Eyjafirði eftir að Sighvatur tók þar völd. Átök urðu þegar Sturla Sighvatsson reyndi að ná sverði einu, Brynjubít, sem var í eigu Þorvarðar Örnólfssonar í Miklagarði. Þorvarður var „hinn besti bóndi í Eyjafirði“. Þorvarður var bróðir Jóns, sem bjó á Möðruvöllum í Eyjafirði, og hefur að minnsta kosti verið næst besti bóndi í Eyjafirði.
Þeir bræður, Sturla og Tumi, vildu kaupa sverðið Brynjubít en Þorvarður vildi ekki selja. Hann féllst þó á að lána Sturlu sverðið, en það dróst að hann afhenti Sturlu það. Fór þá Sturla inn í Miklagarð við þriðja mann, gekk inn í húsið og tók sverðið. Prestur einn þreif í sverðið, og kom Þorvarður síðan að og vildi ekki leyfa Sturlu að taka sverðið. Sturla var þá 18 ára. Hann var með exi og hjó með henni í höfuð Þorvarði, en öxin snéri vitlaust og kom hamarinn í höfuð Þorvarði. Lá hann sem dauður væri og blæddi mjög. Sturla fór við svo búið og tjáði Sighvati föður sínum málalyktir, en Sighvatur skammaði Sturlu fyrir tiltækið. Sighvati mun þó ekki hafa líkað þetta sérlega illa. 
Sighvatur féllu báðir í Örlygsstaðabardaga 1238 og Ásbirningar, helstu stuðningsmenn Guðmundar dýra á sínum tíma, náðu þá völdum í Eyjafirði.
Sigurvegarar í Örlygsstaðabardaga voru Kolbeinn ungi, foringi Ásbirninga, og Gissur Þorvaldsson foringi Haukdæla. Þetta bandalag náði nú völdum í Eyjafirði, nánar tiltekið Kolbeinn ungi, sem hafði völd um allt Norðurland alveg til fráfalls síns árið 1245. Þá náði Þórður kakali yfirráðum þar, og raunar nánast um allt land eftir Haugsnessbardaga alveg til 1252.
Þess má geta að Oddaverjar gáfu konungi goðorð sín árið 1249. Þingmenn þeirra voru að líkindum flestir á Rangárvöllum.
Þegar Þórður kakali fór utan á konungsfund árið 1250 skipaði hann Hrana Koðránsson yfir veldi sitt á Norðausturlandi, þar á meðal í Eyjafirði og þá Svarfaðardal. Lauk svo að Þorgils skarði fékk yfirráð yfir Eyjafirði 1256 og eftir það Noregskonungur árið 1258. Var Gissur Þorvaldsson þá skipaður jarl yfir lönd konungs á Íslandi.

fimmtudagur, 26. nóvember 2015

Guðmundur dýri lætur af völdum


Guðmundar sögu dýra lýkur með því að Guðmundur dýri gefur upp mannaforráð, flytur frá Bakka í Öxnadal, höfuðbóli sínu og gengur í klaustur í Þingeyraklaustri. Hann hafði þá lengi reynt að ná völdum um allan Eyjafjörð og hafði stuðning ýmissa héraðsmanna, sérstaklega Svarfdæla. Andstæðingar Guðmundar höfðu stuðningsmenn suður á Rangárvöllum og gátu leitað þangað ef í nauðir rak. Guðmundur dýri hafði hins vegar stuðning Ásbirninga í Skagafirði og kom Kolbeinn Tumason til liðs við hann oftar en einu sinni.
Helstu andstæðingar Guðmundar dýra voru fyrst Önundur Þorkelsson goðorðsmaður á Laugalandi og í Lönguhlíð (nú Skriðu) og síðan Þorgrímur Vigfússon alikarl, eftir að Guðmundur hafði drepið Önund í Lönguhlíðarbrennu. Þorgrímur var giftur Guðrúnu dóttur Önundar goða. Þau bjuggu fyrst á Möðruvöllum en voru síðast á Laugalandi í Þelamörk. Þorgrímur hafði stuðning Innfirðinga, þ.e. þeirra bænda sem bjuggu í Eyjafjarðardal, og það virðist hafa reynst Guðmundi dýra um megn að yfirvinna andspyrnu þeirra. Þorgrímur hafði líka stuðning bænda sums staðar í Hörgárdal og líklega einnig á Gálmaströnd og í Kræklingahlíð. Með honum í forystu í síðasta hluta átakanna milli Guðmundar dýra og andstæðinga hans var Þorsteinn Jónsson Loftssonar af ætt Oddaverja.
Ekki er víst að þeir Önundur og Þorgrímur hafi haft sama markmið og Guðmundur dýri, að sameina héraðið undir einni stjórn. Vera má að stuðningsmenn þeirra hafi að einhverju marki haft önnur markmið, þannig að um pólitískan ágreining hafi verið að ræða, ágreining um markmið og leiðir í héraðsstjórninni. Yfirleitt hefur verið gefið í skyn í umfjöllun um Sturlungaöld að valdabarátta aldarinnar hafi verið stefnulaus valdastreita milli höfðingja, en það er ekki víst. Athyglisvert er að stuðningur við Önund og Þorgrím var mestur á svæðum þar sem líklegt er að margir sjálfseignarbændur eða fjölskyldur sem áttu e.t.v. 1-5 jarðir eða svo gætu hafa búið.
Hins vegar blandaðist landspólitíkin beint inn í átökin í Eyjafirði við að Oddaverjar á Rangárvöllum studdu annan aðilann, en Ásbirningar í Skagafirði hinn. Haukdælir komu við sögu sem sáttasemjarar og einnig aðrar höfðingjaættir.
Skoðum aðeins framferði þeirra Guðmundar dýra og Kolbeins Tumasonar í einum þætti átakanna um Eyjafjörð. Veturinn eftir allraheilagramessu kom upp sá kvittur, sem átti uppruna sinn suður og inn í Eyjafirði, að Þorgrímur alikarl, sem verið hafði í skjóli Oddaverja á Rangávöllum um veturinn, væri kominn að sunnan með hundrað manna (120 manna lið), leyndist í Gnúpufellsskógum og ætlaði að ráðast á Guðmund.
Guðmundur dýri sendi þegar í stað boð til Kolbeins Tumasonar og bað hann að koma með allt það lið sem hann gæti úr Skagafirði. Sagan segir að á meðan Guðmundur beið komu Kolbeins og liðsafla hans hafi hann farið á Laugaland og rænt þar og tekið það bú sem þar var eftir og Þorgrímur átti. Einnig tók hann fé af þeim bændum sem stutt höfðu Þorgrím í átökum um haustið árið áður.
Þegar Guðmundur kom heim að Bakka að loknum ránum var Kolbeinn að koma með 50 manna lið vestan úr Skagafirði. Síðan kom í ljós að kvitturinn um að Þorgrímur væri komin að sunnan var ekki annað en kvittur, Þorgrímur var ekki kominn. Kolbeinn fór þó ekki þegar í stað vestur yfir Öxnadalsheiði heldur dvöldu hann og menn hans á Bakka um skeið. „Menn þeirra Guðmundar áttust illt við. Þeir deildu bæði um tafl og konur og stálust frá og skildust við það að hvorugum líkaði vel.“, segir sagan. Kolbeinn fór svo og menn hans um dalinn og „tóku af bóndum slíkt er honum sýnist … “.
Þessi saga um hættuna sem leyndist í Gnúpufellsskógum gefur tilefni til að minnast á atriði sem sjaldan er rætt í sambandi við Sturlungaöld. Það er taugaveiklunin og áfallastreituröskunin sem menn hljóta að hafa verið farnir að finna fyrir við slíkar aðstæður. Guðmundur hafði lengi barist fyrir völdum í Eyjafirði og á ýmsu hafði gengið. Margs konar ofbeldisverk og átök fléttuðust saman og mynduðu þann heldur ófagra átakabálk sem Guðmundar saga dýra greinir frá. Óstaðfestur kvittur dugði til að Guðmundur óskaði liðveislu Kolbeins og sýnir það vel þá taugaveiklun og óöryggi sem menn bjuggu við. Fleiri slíkar sögur eru í Sturlungu, þ.á m. í Guðmundar sögu dýra.
Slíkt gæti hafa átt þátt í að Guðmundur ákvað að hætta tilraunum sínum til að ná völdum í Eyjafirði.